Kaup bandarísks flugrekanda á öllum rekstrartengdum eignum úr þrotabúi WOW air hefur engin áhrif á stofnun nýs lággjaldaflugfélags sem ber vinnuheitið WAB air. Væntanlegur forstjóri WAB air segir að nú sé unnið að því ráða starfsfólk og finna húsnæði. Búið sé að tryggja fjármögnun og það gangi vel að fá flugvélar.
Að undanförnu hafa hópur fjárfesta ásamt tveimur fyrrverandi stjórnendum WOW air unnið að því að stofna nýtt íslenskt flugfélag. Vinnuheiti nýja er félagsins WAB air en það er skammstöfun fyrir We Are Back.
Sveinn Ingi Steinþórsson, einn stofnandi WAB sem áður stýrði hagdeild WOW air og sat í framkvæmdastjórn félagsins, segir að kaup bandarískra fjárfesta á eignum úr þrotabúi WOW, breyti engu um fyrirætlanir WAB.
„Þú þarft ekki að kaupa eignir úr þrotabúi til þess að stofna flugfélag. Við erum bara að vinna eftir plani og áform þeirra hafa engin áhrif á áform okkar,“ segir Sveinn Ingi.
Það að búið sé að kaupa vörumerkið WOW breyti litlu. „WOW var fólkið sem er á bak við vörumerkið en ekki vörumerkið. Það er ákveðinn andi sem var í WOW sem fá fyrirtæki hafa, sem var ótrúlegt,“ segir Sveinn Ingi.
Sveinn Ingi telur að WAB sé með fólkið með sér. Þá séu um þrjár vikur síðan hópurinn sótti um flugrekstrarleyfi til Samgöngustofu og að allur undirbúningur gangi mjög vel. Næstu skref séu að finna húsnæði og ráða starfsfólk.
Eru þið komnir með flugvélar?
„Nei en það er í vinnslu og gengur bara mjög vel,“ segir Sveinn Ingi.
75 prósenta hlutur nýja flugfélagsins verður í eigu írsks fjárfestingarsjóðs sem hefur skuldbundið sig til að tryggja félaginu um fimm milljarða króna, í nýtt hlutafé. Sjóðurinn er í eigu dóttur eins af stofnendum Ryanair. Sveinn segir að búið sé að tryggja fjármögnun. Ekki hafi verið fyrirvari í kaupsamningi um fjármögnun WAB hópsins.
„Ég hef ekki áhyggjur af því að þessi fjársterki aðili sem er að koma inn í félagið komi ekki með fjármagnið. Við erum vongóðir um að þetta gangi allt upp,“ segir Sveinn Ingi.
Hann bendir á að WAB sé vinnuheiti. „Nafnið á félaginu verður kynnt síðar. Þetta er flugfélag fólksins. Við ætlum að bjóða góð verð til og frá landinu og bara líf og fjör eins og í gamla WOW,“ segir Sveinn Ingi.
Búið sé að tryggja fjármögnun WAB air: „Við erum vongóðir um að þetta gangi allt upp“
Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Mest lesið

Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik
Viðskipti innlent

Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu
Viðskipti innlent

Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR
Viðskipti innlent

Gefur eftir í tollastríði við Kína
Viðskipti erlent

Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins
Viðskipti innlent


Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður
Neytendur

Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti
Atvinnulíf