Breska skipið komið til hafnar í Íran Jóhann K. Jóhannsson skrifar 20. júlí 2019 08:22 Olíuskipið Stena Impero er í eigu sænska fyrirtækisins Stena Bulk en siglir undir breskum fána. Vísir/EPA
Mikill þungi er að færast í deilu Breta og Írana eftir að stjórnvöld í Íran hertóku olíuskipið Stena Impero í gær. Tuttugu og þriggja manna áhöfn er um borð í skipinu sem er komið til hafnar í Bandar Abbas í Íran. Skipið er í eigu sænska fyrirtækisins Stena Bulk en siglir undir breskum fána. Stjórnvöld í Tehran segja að skipið hafi siglt á fiskibát í Hormússundi og hafi áhöfn þess báts reynt að ná sambandi við skipstjóra olíuskipsins en án árangurs. Þá létu þeir hafnaryfirvöld í Bandar Abbas vita og í kjölfar þess fóru liðsmenn íranska byltingavarðarins um borð og yfirtóku skipið. Þjóðaröryggisráð Bretlands kom saman í gærkvöldi vegna málsins og sagði utanríkisráðherra landsins, Jeremy Hunt, í gærkvöldi að það komi til með að hafa alvarlega afleiðingar láti írönsk stjórnvöld ekki skipið laust. Hann hefur meðal annars rætt málið við starfsbróður sinn í Bandaríkjunum, Mike Pompeo. Grunnt hefur verið á milli því góða á milli Bretlands og Írans eftir að hermenn breska sjóhersins stöðvuðu för íranska olíuskipsins Grace nærri Gíbraltar í byrjun mánaðarins.
Bretland Íran Tengdar fréttir Íranir hertóku tvö bresk olíuskip Utanríkisráðherra Bretlands hefur lýst yfir miklum áhyggjum eftir að Íranir hertóku tvö bresk olíuskip í Hormússundi í dag. 19. júlí 2019 21:22 Mest lesið „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél Innlent Tveir handteknir vegna líkamsárásar Innlent „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ Innlent Við Íslendingar fórum bara á vertíð og drifum þetta af Innlent Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Erlent Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Erlent Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús Innlent Lést í snjóflóði í Ölpunum Erlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent Fleiri fréttir Hæstiréttur frestar brottvísunum Trumps Lést í snjóflóði í Ölpunum Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Diddy ekki veittur aukafrestur Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Sjá meira
Íranir hertóku tvö bresk olíuskip Utanríkisráðherra Bretlands hefur lýst yfir miklum áhyggjum eftir að Íranir hertóku tvö bresk olíuskip í Hormússundi í dag. 19. júlí 2019 21:22