Bergþór segir sitt uppgjör fara fram gagnvart kjósendum Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. ágúst 2019 19:00
Forsætisnefnd Alþingis staðfesti nú síðdegis þá niðurstöðu siðanefndar þingsins að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn með ummælum sínum á barnum Klaustri í nóvember í fyrra. Hvorugur þeirra hyggst segja af sér þingmennsku. Bergþór segir að hann verði dæmdur af kjósendum en ekki pólitískt skipaðri siðanefnd. Ráðgefandi nefnd samkvæmt 16. gr. siðareglna alþingismanna (siðanefnd) skilaði áliti sínu 5. júlí síðastliðinn en álitið var birt á vef Alþingis í dag. Siðanefndin telur að ummæli Bergþórs Ólasonar um Ingu Sæland, Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, Írisi Róbertsdóttur og Lilju Alfreðsdóttur hafi verið ósæmileg og að í þeim hafi falist vanvirðing er lýtur að kynferði. Þá hafi ummælin kastað rýrð á Alþingi og skaðað ímynd þess. Niðurstaða siðanefndarinnar var sú sama vegna ummæla Gunnars Braga Sveinssonar um Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, Lilju Alfreðsdóttur og Ragnheiði Runólfsdóttur. Var það því niðurstaða nefndarinnar að þeir Bergþór og Gunnari Bragi hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn með ummælum sínum. Aðrir þingmenn sem tóku þátt í umræðum á Klaustri voru ekki taldir hafa gerst brotlegir við siðareglurnar. Bráðabirgðaforsætisnefnd, skipuð alþingismönnunum Steinunni Þóru Árnadóttur og Haraldi Benediktssyni, fékk það hlutverk að fjalla um álit nefndarinnar. Þau funduðu í dag í alþingishúsinu og síðdegis birtist svo álit þeirra þar sem niðurstaða siðanefndar er staðfest. Hvorki Bergþór né Gunnar Bragi ætla að segja af sér þingmennsku vegna málsins. „Þær skammir sem ég tek mest til mín í þessu máli fékk ég frá móður minni fyrir tæpum átta mánuðum síðan og þá áttaði ég mig á því að mitt uppgjör hvað þetta mál varðar verður gagnvart kjósendum mínum í næstu kosningum en ekki gagnvart pólitískt skipaðri forsætisnefnd. Það breytir því ekki að maður tekur niðurstöðu sem þessa til að halda áfram þessari innri skoðun sinni. Ég tók mér hátt í tveggja mánaða leyfi eftir að málið kom upp og hef reynt að fara varlega í orðfæri,“ segir Bergþór Ólason. Þá segist Bergþór hafa minnkað áfengisneyslu sína mikið eftir að málið kom upp en hann er þó ekki hættur að drekka.Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna og Haraldur Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru kjörin tímabundið í forsætisnefnd Alþingis til að fjalla um álit siðanefndar.Vísir/ÞÞSiðareglur fyrir alþingismenn gilda um einkasamtöl á krá Í málinu reyndi á gildissvið siðareglna fyrir alþingismenn. Það er afmarkað í 2. gr. þeirra en þar segir: „Reglur þessar gilda um alþingismenn við opinbera framgöngu þeirra og snerta skyldur þeirra sem þjóðkjörinna fulltrúa.“ Siðanefnd taldi að siðareglurnar næðu til samtals þingmannanna á Klaustri. Forsætisnefnd staðfesti þá niðurstöðu. Einkasamtal á krá getur semsagt fallið undir opinbera framgöngu alþingismanns.Hvenær gilda þá siðareglurnar ekki, ef þær gilda um prívatsamtöl á bar? „Ég held að þetta sé einn af þeim lærdómum sem við tökum af þessu máli. Það er niðurstaða siðanefndar að þetta (barinn) hafi verið með opnu aðgengi og þess vegna hafi þetta verið opinber framganga. Ég efast ekki um að menn hafi ekki áttað sig á því þegar siðareglurnar voru settar og ræddar. Það kannski má segja að undirbúningur og aðdragandi siðareglnanna og umræðan hér í þinginu hafi ekki verið fullnægjandi. Og þess vegna hefur verið hafin endurskoðun á siðareglunum,“ segir Haraldur Benediktsson sem situr tímabundið í forsætisnefnd Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra og ein þeirra kvenna sem rætt var um með afar niðrandi hætti á barnum Klaustri, er óánægð með viðbrögð þingmannanna við niðurstöðum siðanefndar og forsætisnefndar. „Í samræðum sínum á Klausturbarnum kom glöggt í ljós hvaða hug þingmennirnir bera til kvenna. Það var sannarlega dapurlegt. Enn dapurlegra er að þeir hinir sömu skuli nú, átta mánuðum síðar ekki enn sjá að sér heldur reyna að réttlæta ummæli sín. Leitt að þeir sjái ekki sóma sinn í að líta í eigin barm. Ummælin verða þeim til ævarandi skammar,“ segir Lilja í færslu á Facebook sem birtist í kvöld.
Alþingi Upptökur á Klaustur bar Mest lesið Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Innlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Innlent Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Erlent Fleiri fréttir Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Borgarfulltrúi Pírata í veikindaleyfi Óvenjumargir sem sæta gæsluvarðhaldi í fangelsum landsins Ber ekki ábyrgð á tjóni stuðningsfulltrúa sem nemandi beitti ofbeldi Óbólusettir ættu að huga að sinni stöðu fyrir ferðalög „Sá merkasti sem ég hef nokkurn tímann kynnst“ Rauðir markaðir og yfirfull fangelsi Dæla tölvupóstum á ráðherra Segir stjórn sósíalista ræða „pólitískar hreinsanir“ fyrir flokksþing Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Bændur fá bætur fyrir hörmungasumarið í fyrra Björguðu dreng úr gjótu Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Friðrik Ólafsson er látinn Sjá meira