

Gamall talsmaður auðmanna?
Hann gefur í skyn að undirritaður hafi farið með rangt mál í viðtalinu um að í Tollasamningum sé búið að semja um 12% af allri innlendri neyslu á kjúklina- og svínakjöti.
Þær tölur sem hann hins vegar vísar í eru rauntölur innflutnings fyrir árið 2018, sem er allt annað mál. Ástæðan fyrir því að þær tölur eru hærri en reikna má út úr Tollasamningum má rekja til „Opinna Tollkvóta“ sem hækka þetta hlutfall. Það er því ekki rangt sem undirritaður sagði að búið sé að semja um 12% af allri innlendri neyslu á kjúklinga- og svínakjöti. Hann velur að heyra ekki það sem sagt er og gefur í skyn að ég hafi ekki kynnt mér málið. Hann mun líklega komast fljótt að því að svo er ekki. Bent skal á að innflutningur er að stærstum hluta beinlaus vara. Væri innflutningur umreiknaður í kjöt með beini líkt og tíðkast við útflutning til ESB myndi hlutfall innflutnings af heildarneyslu hækka umtalsvert.
Aðrar tilvitnanir hans í greininni, úr viðtalinu, skipta umræðuna engu máli og því þarf ekki að vitna frekar í það.
Í greininni bendir hann á þá staðreynd að íslenskar afurðastöðvar eru stærstu innflytjendur á erlendum kjötafurðum hingað til lands. Það er hárrétt. Ólafur og félag atvinnurekenda hafa gert það tortryggilegt í umræðunni.
Málfluttningur Ólafs og félags atvinnurekendaer að bændur og afurðarsöðvar séu ekki samkvæmar sjálfum sér þar sem þær eru sjálfar að flytja inn kjötafurðir frá Evrópu.
FESK er ekki á móti innflutningi, heldur eingöngu á móti innflutningi á vörum sem við íslendingar erum ekki færir um að framleiða sjálf í sömu gæðum og best gerist. Einnig telur FESK þörf á að flytja inn afurðir til þess að fylla uppí eftirspurn á ákveðnum vörum sem ekki er skynsamlegt að framleiða sérstaklega, dæmi um það eru svínasíður (beikon).
FESK leggur einnig áherslu á að gerðar séu sömu gæðakröfur til þeirra afurða sem fluttar eru inn til landsins og framleiddar eru hér á landi.
Það er ljóst að með tollasamningum þá verða erlendar afurðir fluttar inn, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Ekki er hægt að ætlast til að afurðarstöðvar sitji hjá og verði fyrir þeim rekstrarskaða sem því fylgir að missa hlutdeild á markaði. Afurðarstöðvarnar neyðast því til að taka þátt í þessum tollasamningum.
Það eru þó kostir við það að afurðarstöðvar hafi líka sinnt þessum innflutningi, ekki bara heildsalar. Afurðastöðvar hafa nýtt fjárfestingar í tækjabúnaði og aðstöðu sem þegar eru til staðar og um leið aukið innlendan virðisauka með starfsafli sem fullvinnur vörurnar en ekki flutt inn forpakkaðar afurðir. Þekking afurðarstöðvanna á þessu sviði er einnig gríðarlegur kostur til að tryggja að bestu gæði skili sér til landsins í gegnum þessa tollkvóta en ekki bara það ódýrasta sem í boði er.
Það kjöt sem afurðarstöðvar hafa flutt inn er frosið kjöt og líftími hugsanlegra sýkinga liðinn þegar vara kemur til landsins. Ef upp kæmi sýking á markaði í Evrópu er auðveldara að stöðva þær vörur í ferlinu þar sem um frysta vöru er að ræða.
Staðan er því ansi kostuleg. Ólafur og félag atvinnurekenda eru að þrýsta á afurðarstöðvar að halda innflutningi áfram í nafni neytendaverndar, á sama tíma vilja afurðarstöðvar minnka innflutning, þar sem þörfin er ekki til staðar. Samhliða þessu hafa allar kannanir sem gerðar hafa verið sýnt að íslendingar velja miklu frekar íslenskar landbúnaðarvörur en þær innfluttu.
Hvaða hagsmuna er Ólafur og félag atvinnurekenda að gæta? Er það arðsemi nokkura fyrirtækja í félagi atvinnurekenda?
Er það mikilvægara en samfélagsleg ábyrgð, innlendur virðisauki, kolefnisspor og heilnæmi í fæðu okkar íslendinga?
Sigmar Vilhjálmsson
Talsmaður FESK,
Félags eggja-, svína- og kjúklingabænda á Íslandi.
Skoðun

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar