Leikararnir sem munu setja upp verkið eru þau Edda Björgvinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Helga Thorberg, Guðrún Þórðardóttir, Ingólfur Björn Sigurðsson og Elfa Gísladóttir. Leikritið er spunaverk að hluta og byggir á leikverkinu „Þjónn í súpunni“ sem sýnt var í Iðnó fyrir aldamótin og fóru þær Edda og Lilja Guðrún einnig með hlutverk í þeirri sýningu ásamt Stefáni Karli Stefánssyni heitnum.

Byrjuðu að vinna saman eftir að hafa barist fyrir bættri umferðarmenningu
„Ein bekkjarsystir okkar keypti búgarð um klukkutíma frá Seattle og breytti því og var þarna með „Murder Mystery-theatre“ og við erum að fara að leika í þessu, í svona eins og kaffileikhúsi,“ segir Edda aðspurð hvernig það kom til að hópurinn ákvað að ferðast alla leið til Washingtonríkis í því skyni að setja upp leiksýningu. Umrædd bekkjarsystir er Elfa Gísladóttir, sem fer með hlutverk í sýningunni.Edda segir hópinn lofa miklu fjöri og þau séu staðráðin í að gera „allskonar skemmtilegt“ fyrir sýningargesti. Þau séu góðir vinir og hafi haldið hópinn alla tíð frá útskrift, enda sé slíkt nauðsynlegt fyrir leikara sem þurfa oft að hafa mikið fyrir hlutunum eftir útskrift.

Hún segir hópinn vera hrikalega spenntan fyrir sýningunni og ferðalaginu sem er fram undan. Þau séu búin að hittast og ákveða ákveðinn ramma utan um sýninguna, en líkt og fyrr sagði er verkið að stærstum hluta spuni svo það mun ýmislegt koma áhorfendum á óvart.
„Ég eiginlega bjó til enska útgáfu af þessu þar sem þjónar eru með vitleysisgang og eru að abbast upp á gesti þannig að hluta til er þetta spuni en það er alveg ákveðinn rammi,“ segir hún og bætir við að hópurinn stefni á stífar æfingar þegar á leiðarenda er komið.