Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis fundaði í morgun um málefni innanlandsflug og komu framkvæmdastjórarar frá Flugfélagi Íslands, Erni og Isavia fyrir nefndina og fóru yfir stöðuna. Vilhjálmur Árnasona, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður óskaði eftir fundinum.
„Ég hafði miklar áhyggjur af þessum óveðursskýjum sem eru búin að hrannast upp í kringum innanlandsflugið. Það er búið að vera gríðarlegur samdráttur í innanlandsfluginu. Síðan er þessi rekstrarvandi sem flugrekstraraðilar virðast vera að lenda í með því að vera draga töluvert úr tíðni flugferða út á land. Þar af leiðandi er innanlandsflugið ekki að sinna hlutverki sínu sem almenningssamgöngur,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir að skoska leiðin svokallaða sem er til skoðunar, þar sem ríkið niðurgreiðir helming framiðans fyrir fólk á jaðarsvæðum, dugi ekki til að mæta vandanum.

Skoska leiðin þurfi þó að koma til framkvæmda strax á nýju ári. En með öðrum lausnum. Vilhjálmur mun leggja til að skoðað verði að ríkið komi enn frekar að fjármögnun, til dæmis með að fullfjármagna þjónustusamninginn við Isavia. Komið verði fram við flugið líkt og almenningssamgöngur.
„Við tölum ekki endilega um það sé opinberlega styrkt stærókerfið, sem það er náttúrulega. Ef að til dæmis strætó væri ekki með opinbera styrki að þá myndi farmiðinn kosta 1.790 krónur í staðinn fyrir 490 krónur. Og út af þeim styrkjum er hægt að halda úti vissri tíðni," segir Vilhjálmur.
Aðgerðir til að bæta stöðu innanlandsflugs þoli enga bið.
Gæti innanlandsflug lagst af, komi ekki til einhverra aðgerða?
„Það legst ekki af á næstu mánuðum. En ef ekkert gerist; ég veit ekki hvað þolinmæði manna er lengri ef það fer ekki að sjást á einhver spil fljótlega á nýju ári,“ segir Vilhjálmur.