Í spurningatíma á viðburðinum í dag var Johnson spurður að því hvort að hann gæti lofað því að sækjast aldrei eftir því við Evrópusambandið að fresta Brexit svaraði forsætisráðherrann: „Já, ég get það. Ég vildi frekar liggja dauður í skurði.“ Hann vildi þó ekki svara því hvort hann segði af sér ef þingið skikkaði hann til að sækja um frest, aðeins að tilgangslaust væri að fresta útgöngunni frekar en þegar er orðið, að sögn The Guardian.
Uppreisnarmenn í Íhaldsflokki Johnson tóku höndum saman við stjórnarandstöðuna og greiddu atkvæði með frumvarpi sem myndi neyða Johnson til að fresta Brexit á þriðjudag. Hann lagði í kjölfarið fram frumvarp um að boða til kosninga 15. október en það var fellt í gærkvöldi.
Stjórnarandstaðan var andvíg tillögu gærdagsins af ótta við að Johnson myndi ganga á bak orða sinna og fresta kosningunum fram yfir settan útgöngudag úr Evrópusambandinu, 31. október, og þannig ná samningslausri útgöngu, þvert gegn vilja þingsins. Tvo þriðju hluta þingmanna þarf til að samþykkja tillöguna um kosningar og náðist það ekki í gær.
Sajid Javid, fjármálaráðherra Breta, sagði í morgun að stjórnarandstaðan væri hrædd við vilja þjóðarinnar. John McDonnell, skuggafjármálaráðherra, sagði hins vegar að Verkamannaflokkurinn væri tilbúinn í kosningar. Spurningin snerist um tímasetningu.
Á mánudag verður staðan að öllum líkindum orðin sú að frumvarp stjórnarandstöðunnar, sem skuldbindur Johnson til þess að biðja Evrópusambandið um að fresta útgöngunni, verður orðið að lögum og vonast Johnson til að það dugi til að tryggja kosningatillögunni stuðning.
En ríkisstjórn Íhaldsflokksins heldur áfram að veikjast eftir að hafa misst meirihluta sinn í vikunni og rekið 21 þingmann úr þingflokknum. Jo Johnson, bróðir forsætisráðherrans, sagði af sér sem bæði þingmaður og ráðherra í dag vegna óánægju með stefnu stjórnarinnar.