Leikritið fjallar um sumarbústaða ferð sem endar með ósköpum og lagið, textinn og myndbandið eru í svipuðum stíl.
Í leikritinu skella hjónakornin Benedikt og Þórunn sér í bústað í Eyjafirði. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar þegar hún hyggur á heimsókn til móður sinnar og býður bæði viðhaldinu og vini sínum til veislu. Allt í einu snýst eiginkonunni hugur og ákveður án fyrirvara að vera um kyrrt. Þá hitnar hratt í kolunum og þegar veisluþjónustan bætist í hópinn ætlar beinlínis allt um koll að keyra.
Leikarar í sýningunni og myndbandinu eru Haraldur Ari Stefánsson, Jörundur Ragnarsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.
Sýningin verður frumsýnd laugardaginn 5. október.
Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og Katrín Halldóra, leikkona, mættu í Bítið og töluðu um farsann Sex í sveit í gær.