Varnarmálaráðuneyti Sádi-Arabíu segir að brak drónanna og eldflauganna sem skotið var á Abqaiq olíuvinnslustöðina þar í landi staðfesti að Íranir séu á bakvið árásirnar. Er því haldið fram að meðal þess sem fundist hafi í brakinu væri vængur af írönskum dróna, og að gögn sem á þeim hafi fundist bendi til þess að um íranska dróna sé að ræða. Stjórnvöld í Íran hafa áður hafnað öllum ásökunum um þátttöku sína í árásunum.
Árásirnar sem áttu sér stað um síðustu helgi drógu verulega úr olíuframleiðslu í Sádi-Arabíu og hefur leitt til hækkunar á olíuverði á mörkuðum. Árásin á Abqaiq olíuvinnslustöðina, sem er sögð vera sú stærsta í heimi, lamaði framleiðslu hennar og kynti undir spennu á svæðinu. Einnig var gerð árás á Khurais olíulindirnar.
Hútar, sem eiga í stríði við bandalagsher undir forystu Sáda í Jemen, hafa lýst yfir ábyrgð á árásunum. Bandarísk stjórnvöld hafa aftur á móti sakað Írani um að standa að baki þeim og Sádar sömuleiðis. Því hafa stjórnvöld í Teheran alfarið hafnað.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu halda því nú fram að sönnunargögn sanni þátttöku Írana. Col Turki al-Malki, talsmaður varnarmálaráðuneytis Sádi-Arabíu, sagði að að drónarnir átján og eldflaugarnar sjö sem notaðar voru í árásunum hafi komið úr átt sem útiloki að þær hafi átt uppruna sinn í Jemen líkt og Hútar hafi haldið fram.
Yfirvöldum hefur þó ekki enn tekist að staðfesta að vopnunum hafi verið skotið frá Íran.
Segja brakið sanna að Íran hafi staðið að baki árásunum

Tengdar fréttir

Fullyrða að árásirnar hafi verið gerðar frá Íran
Bandarískir embættismenn segja að drónar og flugskeytin í loftárásunum á sádiarabískar olíulindir um helgina hafi komið frá sunnanverðu Íran.

Hefur miklar áhyggjur af aukinni spennu eftir árásirnar á olíulindir Sáda
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), kveðst hafa miklar áhyggjur af aukinni spennu í Mið-Austurlöndum eftir loftárásirnar sem gerðar voru á olíulindir Sádi Arabíu um helgina.

Olíuverð hækkaði um fimmtán prósent í gær
Ástæðan eru árásir sem gerðar voru á olíuvinnslustöð í Sádi-Arabíu á laugardag en við það minnkaði olíuframleiðsla heimsins um fimm prósent.

Drónaárásirnar gætu leitt til umtalsverðra eldsneytis- og verðlagshækkana hér á landi
Drónaárásir á sádi-arabískar olíuvinnslustöðvar gætu haft mikil áhrif um allan heim.