Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, kemur m.a. fram að á kjörtímabilinu eigi að vinna gegn kynbundnum launamun, auk þess vill ríkisstjórnin vinna með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgum vinnumarkaði.
Sjúkraliðafélag Íslands hefur um árabil vakið athygli á viðvarandi mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu, skorti á sjúkraliðum og að nýliðun gangi allt of hægt. Allir sem til þekkja vita að skortur á sjúkraliðum veldur auknu álagi á þá sem starfinu sinna. Þessi staða eykur líkurnar á kulnun og eru mörg dæmi þess að sjúkraliðar hafi hrakist úr starfi vegna hennar.
Fagfólk sem vinnur við hjúkrun er burðarvirki heilbrigðisþjónustunnar. Sjúkraliðar gegna þar lykilhlutverki og er um 98% þeirra konur. Starfið er mjög gefandi og fjölbreytt, en reynir á og er oftar en ekki virkilega krefjandi. Um 90% sjúkraliða vinna í vaktavinnu, en rannsóknir sýna að vaktavinna er sérstakur áhættuþáttur varðandi alvarleg veikindi, sem brýnt er að taka tillit til við skipulag á vinnutíma. Auk þess er heilbrigðisstarfsfólk útsettara fyrir veikindum og þá sérstaklega sjúkraliðar sem sinna nærhjúkrun.
Það er því brýnt að leggja fram raunhæfar leiðir til þess að bæta mönnun í heilbrigðisþjónustunni. Vinnutími og launakjör er þar lykilatriði. Það þarf að taka tillit til breyttra gilda á vinnumarkaði, því viðhorf unga fólksins til vinnu hafa breyst. Ungt fólk hefur sett sér skýr markmið um mikilvægi fjölskyldulífs. Auk þess þarf að leiðrétta stöðu kvenna á vinnumarkaði. Fjölmargar rannsóknir sýna að konur bera þungan af heimilisstörfum og að samanlagður vinnutími kvenna í vinnu og á heimili er 30% lengri en hjá körlum. Krafa sjúkraliða er í skýr í yfirstandandi kjaraviðræðum. Við viljum að vinnuvikan verði stytt í 35 klukkustundir og enn meira fyrir vaktavinnufólk, án skerðingar á launum. Við viljum líka að launakjör okkar séu þannig að hægt sé að lifa af þeim.
Sjúkraliði er löggiltur heilbrigðisstarfsmaður, sem lokið hefur þriggja ára metnaðarfullu starfsnámi. Byrjunarlaun hans eru 328.584 kr. á mánuði fyrir fullt starf. Byrjunarlaun sjúkraliða eru sambærileg byrjunarlaunum 16 -18 ára unglinga samkvæmt lágmarkstekjutryggingu í lífskjarasamningi. Þessi staðreynd er ekki einungis niðurlægjandi fyrir sjúkraliðastéttina, heldur stríðir hún gegn stefnu ríkisstjórnarinnar um að leiðrétta kynbundin launamun og stuðla að ábyrgum og réttlátum vinnumarkaði.
Það er ekki að ástæðulausu að stytting vinnuvikunnar og betri launakjör eru helstu baráttumál sjúkraliða. Sjúkraliðar vilja að kjarasamningur skili þeim og samfélaginu raunverulegum ávinningi, sem fellst í betra starfsumhverfi og launakjörum sem hægt er að lifa af og eru í samræmi við menntun þeirra og ábyrgð.
Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands.

Sjúkraliðar vilja að kjarasamningur skili þeim og samfélaginu raunverulegum ávinningi
Skoðun

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar