Tvö ungbörn og ellefu mæður og ljósmæður eru látnar eftir að vígamenn réðust á fæðingardeild sjúkrahúss í Kabúl, höfuðborg Afganistans í dag. Árásarmennirnir eru sagðir hafa verið dulbúnir sem lögreglumenn en þeir voru allir skotnir til bana í klukkustundalöngum skotbardaga í kjölfarið.
Fimmtán til viðbótar eru sárir, þar á meðal nokkur börn, en sérsveitir afganska hersins bjargaði um hundrað konum og börnum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Alþjóðasamtökin Læknar án landamæra reka fæðingardeildina og eru sumir þeirra sem þar starfa erlendir.
Nokkrir byssumenn eru sagðir hafa ráðist inn á sjúkrahúsið um klukkan tíu að staðartíma. Þá voru um 140 manns á sjúkrahúsinu. Vitni lýsa því að alger ringlureið hafi gripið um sig. Byssumennirnir hafi skotið á fólk að því er virtist að handahófi.
Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á ódæðinu en talibanar hafna því að hafa komið nærri henni. Engu að síður sagði Ashraf Ghani, forseti, að herinn myndi halda áfram árásum á talibana og aðra uppreisnarhópa í kjölfar árásarinnar í dag. Talibanar hafa áður þrætt fyrir aðild að árásum sem þeir eru sakaðir um.
Að minnsta kosti 24 féllu í annarri árás þegar sprengja sprakk við útför lögreglustjóra í Nangarhar-héraði í austanverðu landinu. Þúsundir manna voru viðstaddir útförina en héraðsstjórnarmaður er sagður á meðal þeirra föllnu. Tala látinna í árásinni er talin enn getað hækkað en 68 manns særðust í henni.