Skoðun

Hafa skal það sem sannara reynist

Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í Kastljósi 27. maí ræddi Einar Þorsteinsson við Kára Stefánsson í IE um kostnað við Covid-19 skimanir. Kom fyrst fram hjá Kára, að almennt væri þessi kostnaður 3.000-4.000 krónur á skimun, og, þegar farið var út í skimun ferðamanna frá miðjum júní, gaf hann upp töluna 1,7 milljón fyrir 500 ferðamenn, sem jafngildir 3.400 krónum á mann.

Í þessu sambandi nefndi Kári svo, að kostnaður IE við Covid-19 skimanir hefði síðustu 2 mánuði verið 3 milljarðar, „sem við færðum inn í þetta samfélag“, eins og hann orðaði það.

Með tilliti til þess, að IE hafði skimað milli 30.000 og 40.000 manns, þýddi þetta 3ja milljarða tal skimunarkostnað upp á 75.000 til 100.000 krónur á mann.

Fyrir menn, sem fjalla nokkuð um tölur, og vilja gjarnan sjá samræmi og skynsemi í samhengi þeirra og stærð, komu þessar seinni tölur eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Hvaða glóra var nú í þessu?

Ég lagði dæmið fyrir Kára, bað um skýringar, en hann leiddi þetta hjá sér.

Þar sem málið varðaði almenning, ákvað ég að velta því upp hér sl. fimmtudag með grein, sem bar yfirskriftina „Urðu 5 hænur að 100 í Kastljósi!?“.

Kári tók nú við sér og birti þess skýringu, fyrst á Facebook og síðan hér á Vísi, sem athugasemd við mín skrif:

„Oft hafa mér orðið á reiknivillur en ekki í þetta skiptið vegna þess að dæmið er einfalt. Það kostar rúman milljarð að reka Íslenska erfðagreiningu í mánuð. Við skimuðum eftir veirunni í um það bil þrjá mánuði og lokuðum fyrir alla aðra starfsemi á meðan. Þar af leiðandi er kostnaður okkar af verkefninu þrír milljarðar þótt ekki nema partur af því hafi farið beint í að kosta skimunina. Stór hluti var kostnaður af fórn sem við urðum að færa til þess að geta skimað. Það hefði verið margfalt ódýrara að skima þann fjölda sem við gerðum ef við hefðum verið skimunar apparat en ekki erfðafræðifyrirtæki.“

Undirritaður hefur kynnt sér rekstrargjöld IE, og eru þau um 1 milljarður á mánuði. Hann telur því þessa skýringu Kára góða og gilda, og dáist þá um leið af ótrúlegu framlagi IE til íslenzks samfélags í þessu formi.

Önnur hlið á þessu sama máli er sú, að þessar skimanir munu eflaust gagnast IE og/eða eiganda þeirra, Amgen í USA, við þeirra rannsóknar- og þróunarvinnu; kannske verða þær til þess, að þessir aðilar verði í fremstu röð um þróun Covid-19 meðals eða bóluefnis, sem gæti tryggt þeim mikla hagsmuni. Væri þá um það að ræða, sem erlendis er kallað „win-win situation“; verkefni, sem gefur tveimur eða fleiri þátttakendum báðum/öllum forskot eða ávinning. Væri það eðlileg og ekkert nema gott um það að segja.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×