Ítalska úrvalsdeildarfélagið Bologna hefur keypt Ara Sigurpálsson frá HK. Hann var lánaður til Bologna með kauprétti síðasta haust og ítalska félagið hefur nú gengið frá kaupunum á honum.
Ari verður lánaður strax aftur til HK og mun spila með liðinu í sumar. Hann lék tvo leiki í Pepsi Max-deild karla á síðasta tímabili. Hann er yngsti leikmaður HK í efstu deild.
Í vetur lék Ari með U-17 ára liði Bologna. Hann skoraði fjögur mörk og lagði upp átta í tólf leikjum.
Bologna kaupir Ara Sigurpálsson.
— HK (@HK_Kopavogur) June 11, 2020
Bologna lánar Ara strax til baka til HK og mun hann leika með HK í Pepsi Max deildinni í sumar.
Ari sem varð 17 ára í mars síðastliðnum lék sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deildinni haustið 2019#liðfólksins #fotbolti pic.twitter.com/3cyTRNfCIT
Ari, sem hefur leikið fjórtán leiki fyrir yngri landslið Íslands, er annar tveggja Íslendinga sem eru á mála hjá Bologna. Andri Fannar Baldursson lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins í febrúar.
HK mætir FH í fyrsta leik sínum í Pepsi Max-deildinni klukkan 18:00 á sunnudaginn. HK var spáð 10. sæti í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og formanna liðanna í deildinni sem var opinberuð í dag.
Á síðasta tímabili endaði HK í 9. sæti Pepsi Max-deildarinnar.