Rúnar Kristins með 16-4 tak á Heimi Guðjóns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2020 12:30 Rúnar Kristinsson hefur unnið færri Íslandsmeistaratitla en Heimir Guðjónsson. Þegar kemur að innbyrðis leikjum þá hefur Rúnar haft tak á Heimi. Mynd/Daníel Þór Rúnar Kristinsson stýrði á laugardagskvöldið KR-liðinu til sigurs í sjötta sinn í efstu deild á móti liði undir stjórn gamla liðsfélaga síns úr KR, Heimis Guðjónssonar. KR vann leikinn 1-0 og skoraði Óskar Örn Hauksson eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiksins. Rúnar byrjaði kannski ekki vel á móti Heimi en hefur aftur á móti haft góð tök á honum síðustu ár. Heimir Guðjónsson vann tvo af þremur fyrstu innbyrðis leikjum liða þeirra í deildinni og einn bikarúrslitaleik að auki. Eftir þetta fagnaði Rúnar Kristinsson sigri í fjórum deildarleikjum í röð á móti Heimi Guðjónssyni og eftir sigurinn á laugardaginn hefur Rúnar nú unnið fimm af síðustu sjö leikjum liða þeirra í efstu deild. Frá og með sumrinu 2012 þá hafa lið Rúnars og Heimis þannig mæst sjö sinnum í úrvalsdeild karla. Lærisveinar Rúnars fengu sextán stig í þessum sjö leikjum en lið Heimis aðeins fjögur. Rúnar er því búinn að ná í fjórfalt fleiri stig en Heimir í innbyrðis deildarleikjum þeirra undanfarin ár. Markatalan í þessum sjö leikjum er síðan 14-6 liðum Rúnars Kristinssonar í vil.
Rúnar Kristinsson stýrði á laugardagskvöldið KR-liðinu til sigurs í sjötta sinn í efstu deild á móti liði undir stjórn gamla liðsfélaga síns úr KR, Heimis Guðjónssonar. KR vann leikinn 1-0 og skoraði Óskar Örn Hauksson eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiksins. Rúnar byrjaði kannski ekki vel á móti Heimi en hefur aftur á móti haft góð tök á honum síðustu ár. Heimir Guðjónsson vann tvo af þremur fyrstu innbyrðis leikjum liða þeirra í deildinni og einn bikarúrslitaleik að auki. Eftir þetta fagnaði Rúnar Kristinsson sigri í fjórum deildarleikjum í röð á móti Heimi Guðjónssyni og eftir sigurinn á laugardaginn hefur Rúnar nú unnið fimm af síðustu sjö leikjum liða þeirra í efstu deild. Frá og með sumrinu 2012 þá hafa lið Rúnars og Heimis þannig mæst sjö sinnum í úrvalsdeild karla. Lærisveinar Rúnars fengu sextán stig í þessum sjö leikjum en lið Heimis aðeins fjögur. Rúnar er því búinn að ná í fjórfalt fleiri stig en Heimir í innbyrðis deildarleikjum þeirra undanfarin ár. Markatalan í þessum sjö leikjum er síðan 14-6 liðum Rúnars Kristinssonar í vil. Leikir liða Rúnars Kristinssonar og Heimis Guðjónssonar í úrvalsdeild karla: Rúnar Kristinsson fagnar sigri (6 leikir) 2020: 1-0 sigur KR á Val á útivelli 2013: 3-1 sigur KR á FH á heimavelli 2013: 4-2 sigur KR á FH á útivelli 2012: 3-1 sigur KR á FH á útivelli 2012: 2-0 sigur KR á FH á heimavelli 2011: 2-0 sigur KR á FH á heimavelli Jafntefli (1 leikur) 2014: 1-1 jafntefli KR og FH í Hafnarfirði Heimir Guðjónsson fagnar sigri (3 leikir) 2014: 1-0 sigur FH á KR á útivelli 2011: 2-1 sigur FH á KR á heimavelli 2010: 1-0 sigur FH á KR á útivelli
Leikir liða Rúnars Kristinssonar og Heimis Guðjónssonar í úrvalsdeild karla: Rúnar Kristinsson fagnar sigri (6 leikir) 2020: 1-0 sigur KR á Val á útivelli 2013: 3-1 sigur KR á FH á heimavelli 2013: 4-2 sigur KR á FH á útivelli 2012: 3-1 sigur KR á FH á útivelli 2012: 2-0 sigur KR á FH á heimavelli 2011: 2-0 sigur KR á FH á heimavelli Jafntefli (1 leikur) 2014: 1-1 jafntefli KR og FH í Hafnarfirði Heimir Guðjónsson fagnar sigri (3 leikir) 2014: 1-0 sigur FH á KR á útivelli 2011: 2-1 sigur FH á KR á heimavelli 2010: 1-0 sigur FH á KR á útivelli
Pepsi Max-deild karla Valur KR Mest lesið Olga ætlar ekki í slag við Willum Sport Eygló Fanndal Evrópumeistari Sport Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Sport „Hugur minn er bara hjá henni“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Íslenski boltinn Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn Fótbolti Rekinn út af eftir 36 sekúndur Handbolti Neymar fór grátandi af velli Fótbolti Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Íslenski boltinn Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Viðar Örn að glíma við meiðsli Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-4 | Engin hamingja hjá heimakonum Uppgjörið: Tindastóll - FHL 1-0 | Stólarnir sýndu enga miskunn Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Segir vandræðalegt að Valur hafi ekki unnið KR „Skemmtilegt að þroskast þannig sem leikmaður“ „Meira að hugsa um hvort ég geti unnið heilan vinnudag“ Fimmtán ára KR-ingur tók metið af Eiði Smára: Fær hæfileikana frá mömmu Byrjaði sem grín en endaði með því að Römer fór frá Lyngby til Akureyrar „Það sem klikkaði var að þær komust á lagið og gerðu vel“ Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 6-1 | Meistararnir byrja af krafti „Gott að vera komin heim“ Uppgjörið: Þróttur - Fram 3-1 | Nýliðarnir máttu þola tap í endurkomunni Hin næstum fertuga Sif fær félagaskipti í Víking „Komin ótrúlega langt miðað við hversu stutt er síðan hún átti sitt fyrsta barn“ „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ „Það verður alltaf talað um hana“ „KA búið að leggja það í vana sinn að bregðast mjög seint við“ „Taka hringi á jörðinni og öskra eins og þú sért að fæða barn“ Besta spáin 2025: Skjöldurinn fer ekki neitt Besta-spáin 2025: Nýir tímar en sömu væntingar á Hlíðarenda Sjá meira