Bandaríkin og Kína ekki á lista ESB yfir „örugg lönd“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. júní 2020 19:19 Frá Þýskalandi. AP/Stefan Sauer.
Fjórtán ríki eru á lista ESB yfir þau ríki sem teljast örugg og ríkisborgarar þeirra ættu að fá að ferðast yfir ytri landamæri ESB. Bandaríkin, Kína og Brasilía eru ekki á listanum. Aðildarríki ESB og önnur ríki sem tengjast alþjóðasamstarfi í Evrópu hafa að undanförnu rætt sín á milli ríkisborgurum hvaða ríkja sé óhætt að hleypa yfir ytri landamærin frá og með 1. júlí næstkomandi. BBC greinir frá því að ESB hafi nú tilgreint fjórtán ríki sem teljist örugg og því munu ríkisborgarar þessara landa geta ferðast yfir ytri landamæri ESB. Ríkin fjórtán eru Alsír, Ástralía, Kanada, Georgía, Japan, Svartfjallaland, Marokkó, Nýja-Sjáland, Rúanda, Serbía, Suður-Kórea, Taíland, Túnis og Úrugvæ. Ísland hefur fylgt aðildarríkjum ESB í lokunum á landamærum og hafa sömu takmarkanir verið í gildi hér og innan ESB síðan í mars. Því má reikna má með að taki listi ESB yfir örugg ríki gildi muni Ísland einnig heimila ríkisborgurum þessara landa að koma til landsins. Athygli vekur að Bandaríkin og Brasilía eru ekki á listanum en þar hefur gengið illa að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Kína er ekki heldur á listanum en BBC hefur eftir embættismönnum að það geti breyst heimili Kína ríkisborgum ESB-ríkja að ferðast til Kína. Tekið er fram í frétt BBC að listinn geti enn tekið breytingum en meirihluti ESB ríkja hafi samþykkt hann.
Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Kína Evrópusambandið Mest lesið Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Innlent „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Innlent Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Erlent Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi Innlent Af Alþingi til Fjallabyggðar Innlent Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Erlent Jónas Ingimundarson er látinn Innlent „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ Innlent Steindór Andersen er látinn Innlent Fleiri fréttir Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Yngsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi heims endurkjörinn Áfrýjar í von um að geta boðið sig fram til forseta Ísraelsher réðst á sjúkrahús Síðasti stjórnarandstöðuflokkur Hong Kong verður leystur upp Biðja Trump um að sýna hörku vegna vatnsdeilna við Mexíkó Tugir sagðir liggja í valnum eftir eldflaugaárás á Sumy Réðust á síðasta starfandi sjúkrahúsið í Gasaborg Sjá meira