Upplýsingar um að bandaríska leyniþjónustan teldi að Rússar hefðu heitið talibönum verðlaunum til höfuðs bandarískum hermönnum í Afganistan var að finna í daglegri skýrslu til Donalds Trump forseta seint í febrúar. Trump og Hvíta húsið hafa haldið því fram að hann hafi ekkert vitað um málið.
Fréttir af því að rússneska herleyniþjónustuna GRU hafi heitið talibörnum verðlaunafé fyrir árásir á hermenn Bandaríkjanna og Bretlands hafa valdið titringi í Washington-borg undanfarna daga. New York Times greindi fyrst frá því að bandaríska leyniþjónustan hefði komist að þessi niðurstöðu og upplýst Trump og Hvíta húsið um það í mars. Ríkisstjórnin hafi ekki brugðist við á nokkurn hátt enn sem komið er.
Trump og fulltrúar hans hafa þvertekið fyrir að hann hafi fengið upplýsingar um leyniþjónustumatið og reynt að kasta rýrð á áreiðanleika njósnanna.
Nú segir New York Times aftur á móti að bandarískir embættismenn hafi greint frá því mati leyniþjónustunnar að Rússar hefðu boðið og greitt talibönum verðlaunafé fyrir dráp á bandarískum hermönnum í daglegri upplýsingaskýrslu fyrir Trump seint í febrúar.
Vel þekkt er að Trump forseti les helst ekki daglegar upplýsingaskýrslur um ríkisleyndarmál og greiningu á alþjóða- og þjóðaröryggismálum. Þess í stað kýs hann að láta aðstoðarmann lesa fyrir sig stutta samantekt á skýrslunum nokkrum sinnum í viku. Embættismenn hafa ítrekað lýst því að einkar erfitt sé að kynna Trump upplýsingar um þjóðaröryggismál. Þess í stað kýs Trump heldur að hlusta á álit íhaldssamra fjölmiðla og vina sinna.

Sagðir hafa vitað um njósnir af verðlaunafé Rússa frá því í fyrra
AP-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismönnum í dag að Hvíta húsið hafi vitað af leynilegum upplýsingum sem bendluðu Rússa við verðlaunafé til höfuðs bandarískum hermönnum snemma árs í fyrra, heilu ári fyrr en áður hefur komið fram.
Upplýsingar um þetta mat leyniþjónustunnar hafi verið að finna í daglegum upplýsingaskýrslum Trump í fyrra. John Bolton, þáverandi þjóðaröryggisráðgjafi Trump, er sagður hafa upplýst Trump um það í mars í fyrra.
Bolton vildi ekki tjá sig við AP um hvort hann hefði sagt Trump frá njósnunum. Í sjónvarpsviðtali á sunnudag sakaði hann forsetann þó um að gera sér upp fáfræði til þess að réttlæta að ríkisstjórnin hefði ekki gripið til neinna aðgerða til þess að svara framferði Rússa.
„Hann getur þvegið hendur sínar af öllu ef enginn sagði honum nokkuð um það,“ sagði Bolton sem lýsir Trump sem óhæfum til að gegna embætti forseta í bók sem hann hefur skrifað.
Vefengja áreiðanleika upplýsinganna
Talsmenn Trump hafa til þessa ekki tekið af allan vafa um að upplýsingar um rússneska verðlaunaféð hafi verið forsetanum aðgengilegar í vor. Þannig segir New York Times að þegar þeir neiti því að Trump hafi verið upplýstur um leyniþjónustumatið sé ekki ljóst hvort að þeir eigi bæði við skriflegu skýrslurnar og munnlegu samantektirnar.
„Hann var ekki persónulega upplýstur um málið. Það er það eina sem ég get deilt með ykkur í dag,“ sagði Kayleigh McEnany, blaðafulltrúi Hvíta hússins, í gær.
Þingmenn bæði demókrata og repúblikana hafa krafist þess að þingheimur verði upplýstur um ásakanirnar sem bæði Rússar og talibana vísa á bug. Hvíta húsið bauð nokkrum stjórnhöllum fulltrúadeildarþingmönnum repúblikana til fundar í gær. Þeim var tjáð að ríkisstjórnin væri enn að meta upplýsingarnar um verðlaunafé Rússa en að þær „stönguðust á“ og að ekki væri einhugur um þær á meðal greinenda og leyniþjónustustofnana.
Rannsókn bandarísku leyniþjónustunnar á mögulegri aðild Rússa að árásum í Afganistan er meðal annars sögð beinast að bílsprengjuárás nærri Bagram-herstöðina sem felldi þrjá bandaríska landgönguliða í apríl í fyrra.