Það er boðið til veislu á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Pepsi Max Stúkan ásamt beinum útsendingum úr Pepsi Max kvenna, ítalska boltanum sem og golfi.
Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport í dag. Þór/KA og Fylkir mætast í beinni útsendingu en fyrir fram er reiknað með sigri Fylkis sem sitja í 3. sæti Pepsi Max deildar kvenna.
Um kvöldið er svo Pepsi Max Stúkan með Gumma Ben en þar verður farið yfir allt það helsta sem gerðist í 8. umferð Pepsi Max deildarinnar.
Stöð 2 Sport 2
Stórleikur Atalanta og AC Milan er á dagskrá en Atalanta á enn möguleika á að ná Juventus á toppi deildarinnar. AC Milan er í baráttu um Evrópusæti og mun eflaust gefa stórskemmtilegu Atalanta-liði hörku leik.
Stöð 2 E-Sport
Við sýnum þáttinn Talað um tölvuleiki. Ólafur Hrafn Steinarsson ræðir við góða gesti um uppáhaldstölvuleiki sína, auk þess sem að þeir spila saman tölvuleiki í síðari hluta þáttarins.
Stöð 2 Golf
Tvær beinar útsendingar eru á dagskrá í golfinu í dag. Við sýnum beint frá Evrópumótaröðinni sem og PGA-mótaröðinni.
Hér má sjá það sem er framundan í beinni hjá Stöð 2 Sport.
Hér má svo sjá dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag sem og aðra daga vikunnar.