Eyjólfur Kristjánsson og Telma Rut Sigurðardóttir voru send heim eftir danseinvígi í Allir geta dansað á föstudagskvöldið. Eyfi og Telma og Manuela og Jón Eyþór voru í tveimur neðstu sætunum eftir að símakosningu lauk.
Sex pör dönsuðu á föstudagskvöldið og eru því nú fimm pör eftir. Parið sem fékk bestu einkunn frá dómurunum voru þau Veigar Páll og Ástrós.
Þau fengu tvær 9 og eina 10 og því samanlagt 28 af 30 mögulegum. Þau buðu upp á diskó og dönsuðu ChaCha við lagið Stayin Alive með Bee Gees.
Þetta höfðu dómararnir að segja um atriðið:
„Vá rosalegur kokteill. Nú varstu að njóta þín og gleymdir stund og stað. Vel dansað og flottur fótaburður. Ykkar besta frammistaða, glæsilegt,“ sagði Selma.
„Þið hafið alltaf verið með góðan stöðugleika. Þú varst að fýla þig í kvöld sem var mjög gott. Aðeins úr takti stundum. Mjög skemmtilegt atriði. Vel gert,“ sagði Karen.
„Rosalega ánægður með vinnuna á litlu atriðunum. Mjaðmahreyfingar og allt saman. Þú greinilega naust þín. Glæsilegt,“ sagði Jóhann.
Hér að neðan má sjá atriði Veigars og Ástrósar.