Hlutirnir geta gerst hratt í Super Bowl leik Kansas City Chiefs og San Francisco 49ers á sunnudaginn kemur. Hraðinn er svo sannarlega til staðar hjá mörgum leikmanna liðanna.
ESPN veltir því sér hvort að Super Bowl hafi einhvern tímann hafa getað boðið upp á tvö lið sem búa yfir svo spretthörðum leikmönnum.
Í liði San Francisco 49ers eru það hlaupararnir sem skapa mesta óttann hjá mótherjunum.
Einn þeirra er Raheem Mostert sem er fyrrum spretthlaupsstjarna hjá Purdue háskólanum. Hann sýndi það í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar að hann getur hlaupið hratt með boltann. Mostert skoraði fjögur snertimörk í leiknum og liðsmenn Green Bay Packers réðu ekkert við hann.
The Chiefs' wide receivers -- nicknamed the Legion of Zoom -- and the 49ers' speedy running backs will give Super Bowl LIV a track meet feel. #NFLonESPN5#NFL100https://t.co/f25ijHBtUu
— ESPN5 (@Sports5PH) January 30, 2020
Blaðamaður ESPN spurði Raheem Mostert að því hvaða liðsfélaga hann tæki með sér ef hann ætti að búa til boðshlaupslið fyrir 4 x 100 metra hlaup.
Það stóð ekki á svari hjá Raheem Mostert sem nefndi sjálfan sig og svo Matt Breida, Tevin Coleman og að lokum Jeff Wilson. Allt eru þetta hlauparar í liðinu og allir hafa þeir sýnt að þeir búa yfir ógnvænlegum hraða.
Hjá mótherjunum í Kansas City Chiefs liðinu eru það aftur á móti útherjarnir sem eru að skilja varnarmenn andstæðinganna eftir í sporunum. Þetta eru þeir Tyreek Hill, Mecole Hardman, Sammy Watkins, Demarcus Robinson og Byron Pringle.
We gotta give @MecoleHardman4 the mic more often! pic.twitter.com/rxwMMcY9BI
— Kansas City Chiefs (@Chiefs) January 29, 2020
Jú það er nóg að taka af mönnum sem Patrick Mahomes getur fundið með löngum sendingum upp völlinn. Það hefur Mahomes líka sýnt í allan vetur.
Tölfræðin sýnir það líka og sannar að þessir fyrrnefndu leikmenn búa yfir gríðarlegum hraða.
Meðalhámarkshraði hlauparana í San Francisco 49ers liðinu er 21,35 kílómetrar á klukkstund sem er það mesta hjá liði í allri NFL-deildinni. Raheem Mostert er í heimsklassa enda á hann best 10,15 sekúndur í 100 metra hlaupi.
"They done messed up and gave your boy the mic, so you know we're about to turn up!"
— San Francisco 49ers (@49ers) January 29, 2020
Keep up with @JetMckinnon1 at #SBLIV Opening Night. pic.twitter.com/gyrRdEWp89
Útherjar Kansass City hafa ellefu sinnum gripið boltann á 32 kílómetra hraða á klukkustund en meðalhámarkshraði útherja liðsins er 24,86 kílómetrar á klukkustund. Sá fljótasti er maðurinn sem er kallaður blettatígurinn. Tyreek Hill hefur hlaupið 100 metra hlaup á 9,98 sekúndum en það gerði hann í háskóla árið 2013. Sá tími hefði dugað honum í úrslit á síðustu Ólympíuleikum.
Það má því búast við því að hlutirnir geti gerst mjög hratt á sunnudagskvöldið.
Leikur Kansas City Chiefs og San Francisco 49ers verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin með upphitun klukkan 22.00. Leikurinn sjálfur hefst síðan klukkan hálf tólf.