Di María segist hafa verið neyddur í sjöuna hjá United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. febrúar 2020 22:00 Di María brosti breitt þegar hann var kynntur sem nýr leikmaður United sumarið 2014. vísir/getty
Ángel Di María segir að hann hafi nánast verið neyddur til að vera með treyjunúmerið sjö hjá Manchester United. Því fylgir ansi mikil pressa að vera númer sjö hjá United enda hafa nokkrir af bestu leikmönnum í sögu félagsins verið með það númer á bakinu. Má þar nefna Eric Cantona, Cristiano Ronaldo, David Beckham og Bryan Robson. Di María segir að það ekki verið hans ákvörðun að vera númer sjö eftir að hann kom til United frá Real Madrid sumarið 2014. „Þegar ég kom sá ég að númer ellefu var laust. Ég var með það númer þegar ég var yngri og vildi fá það. Hjá Real Madrid var ellefan í notkun og því tók ég númerið 22,“ sagði Di María. „Hjá United létu þeir mig hafa treyju númer sjö. Ég hafði ekkert val. Ég hefði viljað vera númer ellefu eins og hérna [hjá Paris Saint-Germain].“ Eftir eitt tímabil hjá United var Di María seldur til PSG. Argentínumaðurinn hefur þrisvar sinnum orðið franskur meistari með PSG. Síðan Ronaldo yfirgaf United 2009 hafa ýmsir reynt fyrir sér í treyju númer sjö en með afar takmörkuðum árangri. Alexis Sánchez fékk t.a.m. sjöuna þegar hann var keyptur frá Arsenal. Hann skoraði aðeins fimm mörk í 45 leikjum fyrir United og er núna á láni hjá Inter.
Enski boltinn Franski boltinn Mest lesið Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Enski boltinn Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á sumardaginn fyrsta Sport „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ Körfubolti Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Sjá meira