Minnst 22 tyrkneskir hermenn féllu í loftárás í Idlib-héraði í Sýrlandi í kvöld. Fregnir hafa borist af frekari árásum á Tyrki og mannfalli í kvöld. Þjóðaröryggisráð Tyrklands hefur verið kallað saman á neyðarfund vegna árásanna en undanfarna daga hefur Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, ítrekað hótað því að gera innrás í héraðið til að stöðva sókn stjórnarhers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, sem nýtur stuðnings Rússlands. Tyrkneskir embættismenn segja Assad-liða hafa gert árásina sem um ræðir og beinast spótin að Rússum.
Um milljón manna, þar af lang mest konur og börn, hafa flúið heimili sín vegna sóknarinnar og fjöldinn gæti aukist til muna á skömmum tíma. Tyrkir hafa þó lokað landamærum sínum og segjast ekki geta tekið á móti fleiri flóttamönnum. Um 3,7 milljónir sýrlenskra flóttamanna halda til í Tyrklandi.
Yfirvöld Tyrklands hafa nú tekið þá ákvörðun að hætta að stöðva flóttafólk sem vill komast til Evrópu.
Héðinn Halldórsson, upplýsingafulltrúi hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, er á landamærum Tyrklands og Sýrlands og segir hann ástandið hræðilegt. Almennir borgarar séu á milli steins og sleggju.
Sjá einnig: Hræðilegt ástand og mestu fólksflutningarnir í sögu stríðsins
Tyrkir og Rússar skrifuðu árið 2018 undir samkomulag um að gera nokkurs konar friðarsvæði í Idlib. Báðar fylkingar settu upp eftirlitsstöðvar í héraðinu en nú saka bæði Tyrkir og Rússar hvora aðra um að brjóta gegn samkomulaginu.
Undanfarin ár hafa vígamenn hliðhollir al-Qaeda nýtt sér óreiðuna í Idlib og stjórna þeir nú héraðinu. Að einhverju leyti hafa þeir gert það með stuðningi Tyrkja.