Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.
Eins og alþjóð veit var konudagurinn í gær og fengu þær því verðskuldað sviðið á samfélagsmiðlum.
Hafdís Jónsdóttir, oftast kennd við World Class, naut lífsins á Hawaí á meðan börnin hennar skemmtu sér vel í aldamótapartýi, en nánar að því síðar.
Katrín Tanja skellti sér í sjósund með tveimur góðum vinum á Miami.
Lagasmíðin gengur vonum framar hjá Ólafi Arnalds sem er staddur á Balí.
Leikkonan Unnur Eggertsdóttir fann hamingjustaðinn.
Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson skellti sér í Bláa Lónið með eiginkonu sinni Dagnýju. Hann birti fallega færslu í tilefni konudagsins.
„Innilega til hamingju með daginn ástin mín. Hér er örlítið minningabrot frá þessum sex afmælisdögum sem við höfum eytt saman.“
Björn Boði Björnsson hélt upp á 21 árs afmæli sitt á B5 og var um sannkallað aldamótateiti en gestir þáttu að klæða sig upp í anda 2000. Birgitta Líf, eldri systir Björns, var að sjálfsögðu á svæðinu.
Áhrifavaldurinn Bryndís Líf birtir fallega mynd á Instagram eins og svo oft áður.
Nökkvi Fjalar heiðrar konurnar í hans lífi.
Kristbjörg Jónasdóttir klæddi sig upp og kíkti aðeins út á lífið í Katar.
Tónlistamaðurinn Jón Jónsson birtir fallega mynd af konunum í hans lífi. Hann er giftur Hafdísi Björk og á með henni tvær dætur og einn dreng.
Stjörnuvallarvörðurinn Maggi Bö var staddur í auga stormsins á Tene.
Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason kláraði meistarapróf í blaða- og fréttamennsku um helgina.
Egill Einarsson rifjaði upp skemmtilegt atriði úr Wipe Out þáttunum sem voru á dagskrá Stöðvar 2. Hann einmitt vann þá þáttaröð.
Lauflétt slökun hjá Sverri Bergmann og nýfæddri dóttur hans.
Andrea Magnús fatahönnuður er föst á Tenerife.
Söngkonan Jóhanna Guðrún birti fallega mynd af sér og syni sínum og skrifar við myndina: „The power of love“.
Kristín Avon samfélagsmiðlastjarna birti fallega og góða speki til alla foreldra.
Lína Birgitta hélt upp á konudaginn.
Gyða Dröfn er laus við spangirnar.
Helgi Ómars fer varlega á ferðalagi en hann er staddur í Bangkok.
Alda Karen hitti frú Vigdísi Finnbogadóttur og fagnaði henni í gær í tilefni konudagsins.
Hildur Guðna og förðunarfræðingurinn Sattar Karim sameinuð á ný í Berlín en hann séð alfarið um förðun hennar á verðlaunahátíðum undanfarna mánuði.
Andrea Röfn á uppáhalds kaffihúsinu sínu.
Eva Ruza skellti sér í slökkviliðsmannabúning og tók sig vel út.