Í sjónvarpsþáttunum Trans börn á Stöð 2 er fylgst með fjórum íslenskum fjölskyldum sem eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu.
Í Íslandi í dag í gær ræddi Eva Laufey við Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur og fékk að heyra hvernig vinnslan á þáttunum fór fram, hvað hafi komið henni mest á óvart og fengu áhorfendur einnig að sjá brot úr þáttaröðinni sem hefur mikla eftirtekt í samfélaginu.
„Fyrir þremur árum fórum við almennilega af stað með þetta og fórum að leita að fjölskyldum til að taka þátt og fylgja eftir í þáttunum,“ segir Sigrún en í þáttunum fær hún að fylgjast með trans börnum í tvö ár.
Fyrsta þáttinn af Trans börnum má sjá í heild sinni hér að neðan.
Ákveða að misskilja
Sigrún segir að viðbrögðin við þáttunum hafi verið mjög góð en fyrir birtingu þeirra hafi ýmis fordómafull ummæli birst á netinu.
„Þegar það var tilkynnt að þessir þættir væru á leiðinni í loftið sá maður skiptar skoðanir og allskonar misgáfulegar athugasemdir sem sýndi það og sannaði að það var aldeilis þörf á því að fjalla um þessi mál, því fólk er að misskilja margt. Og stundum finnst manni eins og fólk sé að ákveða að misskilja,“ segir Sigrún og bætir við að sumt fólk sé hreinlega fordómafullt og láti út úr sér hluti sem það veit ekkert um.
„Eftir að þættirnir fóru í loftið hef ég bara fengið jákvæð viðbrögð enda eru þessar fjölskyldur þannig að það er ekki annað hægt en að halda með þeim.“
Innslagið úr Íslandi í dag má sjá að neðan.