BL hyggst innkalla um 160 Land Rover Discovery bíla af árgerð 2017 til 2019.
Á vef Neytendastofu segir að ástæða innköllunarinnar sé að möguleiki sé á að þegar verið sé að loka afturhurðum þá sé hætta á að þær lokist ekki tryggilega.
„Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa,“ segir á vef Neytendastofu.