Ari Magnús snýr aftur með FH: Örugglega hættur ef ég væri ekki örvhentur Sindri Sverrisson skrifar 2. október 2020 11:20 Ari Magnús Þorgeirsson er orðinn leikmaður FH á nýjan leik. FH
Örvhenta skyttan Ari Magnús Þorgeirsson hefur tekið fram handboltaskóna og skrifað undir samning við uppeldisfélag sitt FH. Ari Magnús lagði skóna á hilluna í sumar en síðastliðin tímabil hefur hann gegnt stóru hlutverki hjá liði Stjörnunnar. Ari Magnús fór frá FH eftir tímabilið 2012-13 og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2011. „Við FH-ingar erum virkilega ánægðir með að fá Ara heim í FH. Ari mun styrkja okkur mikið hægra megin á vellinum enda virkilega öflugur og þrautreyndur leikmaður,“ er haft eftir Sigurgeiri Árna Ægissyni, framkvæmdastjóra handknattleiksdeildar FH, í tilkynningu. „Það verður frábært að sjá Ara í svörtu og hvítu á nýjan leik, það eru hans litir,“ sagði Sigurgeir. Viðtal FH-inga við Ara Magnús sjálfan má sjá hér að neðan þar sem hann segir alltaf hafa verið markmiðið að ljúka ferlinum með FH. Hann hafi þó verið búinn að missa áhugann á handbolta síðasta vor: „Ef ég væri ekki örvhentur þá væri ég örugglega hættur. En svo bara fékk ég áhugann aftur. Í lokin á síðasta tímabili var ég aðeins búinn að missa áhugann en svo var maður að horfa á leikina í sjónvarpinu og þá kitlaði að koma inn á völlinn aftur og snerta aðeins harpixið,“ sagði Ari en viðtalið má sjá hér að neðan. Klippa: Ari Magnús í viðtali við FH
Olís-deild karla FH Mest lesið „Hugur minn er bara hjá henni“ Íslenski boltinn Aubameyang syrgir fallinn félaga Fótbolti „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ Körfubolti „Þetta var skrýtinn leikur“ Íslenski boltinn Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Körfubolti „Fáránlega erfið sería“ Körfubolti Fimmtán ára KR-ingur tók metið af Eiði Smára: Fær hæfileikana frá mömmu Íslenski boltinn Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Íslenski boltinn „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sænsku stelpurnar voru 28-8 yfir í hálfleik Handboltastjarna hættir 31 árs: Með tilboð en langar að gera eitthvað annað „Gekk vel að þjappa hópnum saman“ „Stelpurnar hafa mátt þola margt ósanngjarnt“ Uppgjörið: Ísland - Ísrael 39-27 | Reynt að sparka upp hurðum er stelpurnar pökkuðu Ísrael saman Strákarnir hans Guðmundar með frábæran stórsigur á GOG Allir Íslendingarnir skoruðu þegar Kolstad byrjaði úrslitakeppnina með stæl Utan vallar: Með harpix á höndunum – ekki blóð Sjá meira