„Grenjaði úr mér augun í einn og hálfan tíma samfleytt“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. október 2020 15:31 Aníta Briem leikkona vildi ala dóttur sína upp á Íslandi nálægt fjölskyldunni. Hún er því flutt í Vesturbæinn og gæti varla verið hamingjusamari með ákvörðunina. Vísir/Vilhelm „
Lífið er fallegt þessa stundina,“ segir leikkonan Aníta Briem. Hún fór 16 ára á vit ævintýranna og flutti til London. Eftir meira en 12 ár í leiklistinni í Hollywood er hún nú flutt aftur heim til Íslands. Það var eftir sex mánuða dvöl hér á landi á síðasta ári í upptökum fyrir þættina Ráðherrann, sem Aníta byrjaði að íhuga að flytja með fjölskylduna á Klakann. „Ég settist inn í sjálfa mig og sá allt rosalega skýrt og þá vaknaði þessi gríðarlega heimþrá.“ Spennandi tími í kvikmyndagerð á Íslandi Eftir að Aníta var komin út aftur þá leið henni alls ekki vel og varð því mjög glöð að vera kölluð aftur til Íslands fyrir verkefnið Skjálfti, sem er byggt á bók Auðar Jónsdóttur. Bíómyndin kemur út á næsta ári. Síðan þá hefur hún leikið í nokkrum fleiri verkefnum hér á landi eins og Berdreymi og Svar við bréfi Helgu. „Ég skil ekki hvað ég er ofboðslega lánsöm að vinna með svona stórkostlegu fólki.“ Aníta segist þakklát og að hún taki engu sem sjálfsögðum hlut. „Þetta er mjög spennandi tími í kvikmyndagerð á Íslandi og mjög mikið af hæfileikaríku fólki.“ Í einlægu viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni í gær ræddi leikkonan um ferilinn, Hollywood, ný verkefni, kvenleikstjórana hér á landi og ákvörðunina að flytja aftur heim. Viðtalið má hlusta á í spilaranum hér neðar í fréttinni. Aníta BriemVísir/Vilhelm Erfitt að vera ein Í viðtalinu segir hún meðal annars að hún hafi ekki tekið ákvörðun um að flytja til Bandaríkjanna og „meika það“ heldur hafi þetta gerst þannig að eitt leiddi af öðru. „Allt í einu var maður komin með teymi af lögfræðingum, umboðsmönnum, publishistum, stílistum. Allt í einu fer teymið í kringum þig að stækka.“ Aníta lýkir þessu við skrítna vél sem hafi þá farið af stað þar sem margir voru að segja henni að fara í ákveðnar áttir eða gera eitthvað ákveðið. „Verandi þarna ein, þegar ég lít til baka, þá áttaði ég mig ekki alveg á því hvað ég hafði litla stjórn á þessu og hafði náttúrulega enga reynslu til þess að meta hlutina og varð svolítið blind að treysta því sem fólk sagði. Það er kannski það sem að eftir á hyggja var erfitt við að vera ein þarna, er að fólkið sem er að gefa þér ráð, er ekki fjölskyldan þín eða vinir þínir eða fólk sem er annt um þig sem manneskju eða hvernig hjartanu líður, þetta er bara fólk sem er partur af iðnaði.“ Það komu stundir á þessum tíma sem Aníta vaknaði og velti fyrir sér af hverju hún væri orðin svona tóm í hjartanu. „Þetta fór svo ofboðslega hratt og stórt af stað að maður fór bara inn í einhvern svona hvirfilbyl.“ View this post on Instagram How I miss my little chicken A post shared by Ani ta Briem (@anitabriem) on Jul 26, 2020 at 4:21pm PDT Væri sátt að fara aldrei í annað Hollywood partý Hún segir þó að það hafi ekki verið auðvelt að segja eiginmanninum, Dean Paraskevopoulos, að hún vildi flytja til Íslands en þau voru að enda við að byggja sér einbýlishús í Los Angeles sem nú stendur þar autt. „Ég vil vera hérna, ég vil að barnið mitt alist upp hérna og gangi í skóla hérna,“ útskýrir Aníta. „Ég kveið því mjög mikið að eiga þetta samtal en svo ældi ég þessu út úr mér.“ Samtalið tók nokkra daga og á einum tímapunkti endaði leikkonan hágrátandi í eina og hálfa klukkustund í kirkjugarði í Reykjavík. „Ég hef alltaf verið svolítið dramatísk,“ segir Aníta og hlær. Niðurstaðan var sú að hún gat ekki hugsað sér að fara aftur út til Ameríku, ekki einu sinni í eitt ár í viðbót. „Hann er rosalega opinn og tilbúinn að prófa þetta, af því að hann veit hvað þetta er mikilvægt fyrir mig.“ Aníta segir að hún eigi ekki eftir að sakna glamúrsins í Los Angeles. „Ef ég færi ekki aftur í eitt einasta Hollywood partý á ævinni, þá væri ég held ég mjög glöð með það.“ Viðtal Svavars og Evu Laufeyjar við Anitu Briem má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Aníta Briem var gestur í Einkalífinu hér á Vísi á síðasta ári og má horfa á það viðtal í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Kvikmyndagerð á Íslandi Hollywood Bakaríið Mest lesið Madonna og Elton John grafa stríðsöxina Lífið Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Lífið „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Lífið Sjóræningjar réðust á Íslendinga Lífið Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Lífið Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Lífið 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada Lífið Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Lífið Með skottið fullt af próteini Lífið Troðfullt á opnun hjá ofurskvísum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Madonna og Elton John grafa stríðsöxina 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Bleik og ævintýraleg miðbæjarperla Með skottið fullt af próteini Trommari Blondie er fallinn frá Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Laufey sendir lekamönnum tóninn Mikilvægt að á Íslandi sé framleitt úr íslenskri ull „Þessi krakki mun aldrei hlaupa á eftir bolta“ Sjóræningjar réðust á Íslendinga Krakkatían: Blæja, birnir og sveppahús „Ef þú ræðst svona aftur á mig þá stíg ég á fótinn þinn“ Átta ára sæmd heiðursmerki fyrir að bjarga lífi móður sinnar Tæknidagur fjölskyldunnar er í Neskaupstað í dag Hanna Katrín heiðraði Eyjólf í Epal Fréttatía vikunnar: Ungfrú Ísland, eldgos og Þjóðhátíðarlagið Vel yfir milljón á fermetrann og baðkar í eldhúsinu Stuðlabandið höfundar og flytjendur Þjóðhátíðarlagsins: „Við megum ekki fokka þessu upp“ Bað strax um verkjalyf eftir nefaðgerðina Horfði aftur á keppnina þegar hún kom heim Tæplega ein og hálf milljón eggja ofan í landsmenn Rauf þögnina og minntist Kilmer með stundarþögn Verk á íslensku vinsæl í Grikklandi Ása Steinars og Leó greina frá kyninu Sjá meira