Skoðun

Þrefaldur ávinningur heimavinnu

Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Veirufaraldurinn sem geisað hefur um heimsbyggðina, hefur heldur betur hrist upp í viðhorfi til heimavinnu. Gamaldags viðhorf um að allir verði að safnast saman á miðlægan stað til að klára öll þau verkefni sem liggja fyrir, er nú að víkja fyrir augljósum möguleikum fjarvinnu. Tæknin var reyndar löngu tilbúinn fyrir slíka breytingu en menningin hafði víðast hvar staðnað við eldra fyrirkomulag. Þær takmarkanir sem settar voru á, í kringum opinberar veiruvarnir, ýttu við mörgum sem hingað til höfðu hikað við uppbrot á íhaldssömu vinnuumhverfi.

Heimavinna hefur ekki bara jákvæð áhrif í núverandi ástandi þar sem síendurtekin hópamyndun er óheppileg vegna veirusmita. Aukin heimavinna hefur líka mikla möguleika til að draga úr tveimur vandamálum sem blasa við okkur í dag þ.e. losun gróðurhúsaloftegunda og vaxandi umferðateppum.

Minni teppur og minni mengun

Stór hluti umferðar er tilkomin vegna ferða til og frá vinnu. Þó að stór hluti starfa sé háður mætingu þá er ótrúlega stór hluti ekki háður mætingu. Samkvæmt bandarískri rannsókn væri hægt að sinna allt að 50% nútíma starfa heiman frá. Ef að atvinnurekendur myndu aðeins nýta brot af þeim möguleika, þá væri hægt að ná miklum árangri í að draga úr umferð og þar með mengun. Þetta þyrfti ekki endilega þýða að vinnuafl hyrfi gjörsamlega frá vinnustöðum heldur mætti blanda saman heimavinnu við hefðbundna mætingu og ná þannig fram fækkun ferða. Vinnuveitendur gætu t.d. brotið upp vinnuviku með stýrðri heimavinnu þar sem hluti starfsfólks sinnti verkefnum heiman frá en kæmi til vinnu þess á milli í skiptum fyrir aðra starfsmenn. Slíkt fyrirkomulag skapar auðvitað líka möguleika á talsverðri hagræðingu í stærð og gerð atvinnuhúsnæðis. Einnig væri frábært ef stórir vinnustaðir, þar sem heimavinna er möguleg, tækju sig saman og stýrðu mætingu í samhengi við þekkta umferðatepputíma sem oftast eru vel fyrirsjáanlegir.

Vissulega eykur þetta á ábyrgð stjórnenda sem þurfa þá að hafa góða yfirsýn yfir gang verkefna frekar en að treysta bara á einfaldar hausatalningar á mætingu starfsmanna á vinnustað.

Munar um minna

Vegasamgöngur er stærsti losunarvaldur gróðurhúsaloftegunda sem falla beint undir ábyrgð stjórnvalda. Ef heimavinna gæti dregið úr umferð sem nemur aðeins 1 prósenti hjá bensín- og dísil akandi starfsmönnum þá myndi losun gróðurhúsaloftegunda minnka um allt að 10 milljón kg á ári.

Maður er manns gaman og fátt kemur í staðin fyrir mannleg samskipti í raunheimum. Það er þó vel hægt að blanda saman samskiptum og samvinnu manna með heimavinnu og mætingu á vinnustað með ótrúlega jákvæðum áhrifum á umferð, umhverfi og rekstur fyrirtækja og stofnana.

Höfundur er framkvæmdastjóri Orkuseturs.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×