Elías Már skoraði öll mörkin í öruggum sigri Excelsior Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. nóvember 2020 21:01 Elías Már heldur áfram að skora og skora. Angelo Blankespoor/Getty Images
Elías Már Ómarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu er lið hans Excelsior vann 3-0 sigur á TOP Oss í hollensku B-deildinni í kvöld. Hefur hann nú skorað 13 mörk í aðeins 11 leikjum til þessa á leiktíðinni. Það tók Keflvíkinginn knáa aðeins tvær mínútur að þenja netmöskvana í kvöld. Var það eina mark fyrri hálfleiks en Elías Már bætti við öðru marki sínu og öðru marki Excelsior í upphafi síðari hálfleiks og staðan orðin 2-0 heimamönnum í vil. Hann gulltryggði svo þrennu sína og sigur Excelsior á 88. mínútu leiksins. Lokatölur 3-0 heimamönnum í vil og Excelsior komið upp í 8. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 11 leiki. Alls fara liðin í 3. til 8. sæti í umspil um sæti í efstu deild á meðan efstu tvö liðin fara beint upp. Ásamt því að skora 13 mörk í deildinni skoraði hinn 25 ára gamli framherji tvívegis í eina bikarleik Excelsior til þessa og er því með 15 mörk í aðeins 12 leikjum. Hann hefur sagt að markmið sitt sé að spila í sterkari deild á komandi misserum og forvitnilegt að sjá hvort lið beri víurnar í hann er félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Fótbolti Hollenski boltinn Mest lesið Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Handbolti Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Fótbolti Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf gervifætur til þess að geta gengið eðlilega Fótbolti Albert sagður á óskalista Everton og Inter Fótbolti Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Íslenski boltinn Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers Körfubolti Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Körfubolti Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf gervifætur til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United „Hér er allt mögulegt“ Van Dijk fær 68 milljónir á viku Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Solanke skaut Tottenham í undanúrslit Chelsea í undanúrslit þrátt fyrir tap Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Albert og félagar í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Sjá meira