Nemendur og starfsmenn Réttarholtsskóla tóku sig til í morgun og stigu taktfastan dans í takt við lagið Jerusalema. Um var að ræða samtals 400 einstaklinga en í ólíkum sóttvarnahólfum, að sjálfsögðu.
„Í atriðinu er varpað ljósi á þau höft sem skólinn býr við en það er um leið heimild um ástand sem kemur vonandi ekki aftur,“ segir í tilkynningu frá skólanum.
Markmið gjörningsins eru:
- Að hleypa gleði inn í umhverfi hafta og Covid-19
- Að sýna að hægt er að skemmta sér innan sóttvarnareglna grunnskólanna
- Að gera samtakamátt áþreyfanlegan
- Að efla allt skólasamfélagið
- Danskennsla
- Aukin hreyfing
- Að vekja athygli á sóttvörnum