Lewis Hamilton vann Formúlu 1 kappakstur helgarinnar sem fram fór í Istanbúl í Tyrklandi. Með því tryggði hann sér sinn sjöunda heimsmeistaratitil.
Þar með hefur hann jafnað met þýsku goðsagnarinnar Michael Schumacher yfir fjölda heimsmeistaratitla í F1.
He did it. He really did it. pic.twitter.com/32lPUlBRbp
— Mercedes-AMG PETRONAS F1 Team (@MercedesAMGF1) November 15, 2020
Hinn 35 ára gamli Hamilton tryggði sér sigurinn nokkuð örugglega í dag. Sergio Pérez var í öðru sæti og Sebastian Vettel hjá Ferrari var stal þriðja sætinu alveg undir lokin.
„Maðurinn frá Stevenage er orðinn sigursælasti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi,“ segir Jack Nicholls sem lýsti kappakstrinum fyrir BBC.
„Þetta er fyrir alla krakkana þarna úti sem dreymir um hið ómögulega, þið getið gert það líka. Þakka ykkur fyrir stuðninginn,“ sagði Hamilton er það var ljóst að hann hefði unnið. Var hann hágrátandi er hann komst úr bílnum og hljóp beint til samstarfsmanna sinna hjá Mercedes.

Fyrir á tímabilinu hafði Hamilton bætt met Schumacher yfir flesta sigra í sögu Formúlu 1 keppna. Nú hefur hann jafnað Þjóðverjann í fjölda heimsmeistaratitla og ef hann ákveður að halda áfram eru allar líkur að hann bæti þeim áttunda í safnið áður.
DREAM THE IMPOSSIBLE
— Formula 1 (@F1) November 15, 2020
To writing history. To making legends.#S7illRising pic.twitter.com/VsR8S3SwB6