Eþíópíski herinn hefur sagt íbúum í Tigray-héraði í norðurhluta landsins að flýja en herinn nálgast nú höfuðborg héraðsins, Mekelle. Áætlun hersins er að umlykja borgina, en þar búa um 500 þúsund manns, með skriðdrekum og fallbyssum. Þetta staðfesti Dejene Tsegaye talsmaður hersins í samtali við ríkisútvarp Eþíópíu.
„Frelsist undan herforingjastjórninni… við munum ekki sýna neina miskunn,“ sagði hann.
Frelsishreyfing Tigray, sem fer með stjórn í héraðinu, hefur heitið því að gefast ekki upp og halda áfram að berjast. Leiðtogi hennar, Debretsion Gebramichael, sagði í samtali við fréttastofu Reuters að herliði hans hafi tekist að halda aftur af stjórnarhernum.
Ríkisstjórn landsins greindi frá því um helgina að stjórnarhernum hafi tekist að ná mikilvægum bæjum í Tigray á vald sitt.
Átökin í héraðinu hafa nú staðið yfir í rúmar tvær vikur og hafa hundruð dáið og þúsundir hafa flúið heimili sín. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur varað við því að alvarlegt mannúðarástand sé í uppsiglingu í héraðinu og býst stofnunin við að linni átökunum ekki gætu allt að 200 þúsund íbúar Tigray flúið yfir til nágrannalandsins Súdan á næstu sex mánuðum.
Forseti Suður-Afríku, Cyril Ramaphosa, sem einnig er formaður Afríkusambandsins, tilkynnti á föstudag að hann hafi kallað saman hóp þriggja afrískra forseta sem myndu taka að sér yfirumsjón friðarviðræðna milli stríðandi fylkinga.
Eþíópísk yfirvöld afþökkuðu boð Ramaphosa og báru þau fyrir sig að málið væri löggæslumál sem leysa ætti innbyrðis.