Borche Ilievski, þjálfari ÍR, er með plan A og plan B fyrir næstu leiktíð í Domino‘s-deild karla í körfubolta en kórónuveirufaraldurinn veldur mikilli óvissu um það úr hve miklu fé ÍR-ingar munu hafa úr að moða.
Borche hefur náð góðum árangri með ÍR síðustu fjögur tímabil og hefur nú skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2023. Hann segir hins vegar erfitt að segja til um hvernig lið ÍR muni líta út á næstu leiktíð:
„Það er erfitt að gera áætlanir í þessari stöðu þegar allur heimurinn þjáist vegna þessarar kórónuveiru. En ég veit að þessu mun ljúka fljótlega, kannski eftir hálfan mánuð, og vonandi getum við gleymt þessu og farið að lifa okkar venjulega lífi aftur. Ég er með plan A og plan B. Í plani A erum við með peninga til að spila úr, en þetta ástand hefur auðvitað áhrif á efnahaginn og þess vegna höfum við plan B ef að það verða engir peningar til að nota. Hvað sem gerist ætlum við alltaf að vera á toppnum,“ sagði Borche við Kjartan Atla Kjartansson í Sportinu í dag.
Kjartan Atli rifjaði svo upp með Henry Birgi Gunnarssyni matarboð með Borche og hrósaði þjálfaranum í hástert:
„Þetta er ofboðslega góður og gefandi maður. Þjálffræðilega er hann eins og amaba. Amöbur eru einfrumungar sem laga sig að umhverfi sínu. Hann var með eitt besta varnarlið deildarinnar, missir hryggjarstykkið úr liðinu sem fór í úrslit í fyrra, og byggir svo upp það lið sem skorar hvað mest í deildinni í vetur en fékk líka á sig mikið af stigum. Hann endurskipulagði allt í kringum liðið,“ sagði Kjartan Atli. Innslagið má sjá hér að neðan.
Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.