Trump tók ekki á móti forsetahjónunum verðandi í Hvíta húsinu né hefur hann rætt við Biden síðan forsetakosningarnar fóru fram.
Nú er bara að bíða og sjá hvað segir í kveðjunni.
„Kæri George. Það munu koma augnablik þar sem þig mun langa til að nota þetta bréfsefni.“
Þannig hófust fyrstu skilaboðin sem fráfarandi forseti skildi eftir fyrir eftirmann sinn en um var að ræða kveðju sem Ronald Reagan krotaði á minnisblokk prýdda mynd af kalkúnum að spóka sig á buguðum fíl.
Fyrir ofan myndina stóð: „Ekki láta kalkúnana draga þig niður“ en fíllinn er að sjálfsögðu tákn Repúblikanaflokksins, sem Reagan og George H. W. Bush tilheyrðu báðir.
„Velgengni þín er velgengni landsins“
Í umfjöllun sinni um málið segir AP markvert hversu einfaldar kveðjurnar hafa verið gegnum tíðina, ekki síst vegna þess hversu „stórt“ forsetaembættið er. Þá hafa þær jafnan verið hlýlegar og hvetjandi, sem er merkilegt í ljósi þess að þegar Bush tók við af Reagan var það í síðasta sinn sem nýr forseti tók við af flokksbróður sínum.

„Þegar ég gekk inn á skrifstofuna rétt í þessu fann ég til sama mikilfengleika og sömu virðingar og ég fann fyrir fjórum árum. Ég veit að þú munt finna fyrir því líka,“ sagði Bush í skilaboðunum til Clinton.
Bush óskaði Clinton hamingju í Hvíta húsinu og hvatti hann til að láta gagnrýnendur ekki draga úr sér eða víkja sér af leið. „Velgengni þín er núna velgengni landsins. Ég styð þig alla leið. Gangi þér vel.“
Hvíta húsið fyrir krakka
Þegar Bush yngri tók við af Clinton sagði síðarnefndi að byrðarnar sem lægju nú á herðum hans væru miklar en oft á tíðum ýktar.
Bush sagði í bréfi sínu til Obama að gagnrýnin yrði hörð, vinirnir myndu valda honum vonbrigðum en hvað sem gerðist myndi hann fá innblástur frá ástríðu þeirrar þjóðar sem hann færi nú fyrir.
Þá skildu Jenna og Barbara Bush eftir leiðbeiningar fyrir krakka í Hvíta húsinu fyrir Maliu og Söshu Obama, sem fólu meðal annars í sér ábendingar um góð handrið til að renna sér niður og skemmtilega viðburði sem þær ættu að sækja með foreldrum sínum.

Forspár Obama
„Þetta er einstakt embætti,“ skrifaði Obama til Trump. Engar leiðbeiningar væru til sem segðu fyrir um hvernig stýra ætti landinu á farsælan hátt en hins vegar væri eitt sem hafa bæri í huga.
„Við erum aðeins tímabundnir notendur þessarar skrifstofu,“ sagði Obama. Það gerði þá að verndurum þeirra lýðræðislegu stofnana og hefða sem forfeður þeirra hefðu barist og látið líf sitt fyrir.
„Það er undir okkur komið að skilja við þessi áhöld lýðræðis okkar að minnsta kosti jafn sterk og þegar við tókum við þeim.“