McConnell var einn dyggasti stuðningsmaður Trumps í forsetatíð hans og yfirlýsingin kemur aðeins nokkrum dögum eftir að öldungadeildin sýknaði Trump af ákæru um embættisbrot.
Það var meðal annars fyrir tilstilli McConnell sem sú niðurstaða fékkst í þinginu þar sem ekki nægilega margir Repúblikanar samþykktu að dæma Trump.
McConnell greiddi meðal annars atkvæði gegn því að dæma Trump fyrir embættisbrot en sagði þó að forsetinn fyrrverandi væri siðferðislega ábyrgur fyrir að ýta undir árásina á bandaríska þinghúsið í byrjun janúar.
Það hefði forsetinn fyrrverandi gert með lygum sínum um að svindlað hefði verið í bandarísku forsetakosningunum í nóvember.
Yfirlýsingin undirstriki klofninginn í Repúblikanaflokknum
Svo virðist sem það séu þessi orð McConnell sem hafa farið öfugt ofan í Trump sem skefur ekki utan af því í yfirlýsingunni í gær:
„McConnell er önug og fýld pólitísk bikkja sem brosir aldrei og ef að öldungadeildarþingmenn Repúblikana ætla að binda trúss sitt við hann munu þeir aldrei sigra aftur,“ sagði Trump meðal annars í yfirlýsingunni.
Þá sagði hann Repúblikanaflokkinn aldrei geta orðið sterkan eða vandan að virðingu sinni á ný með pólitíska „leiðtoga“ eins og McConnell við stjórnvölinn.
Skortur McConnells á pólitísku innsæi, visku, hæfileikum og persónuleika hefði kostað Repúblikana meirihlutann í öldungadeildinni í kosningunum í nóvember.
Í umfjöllun Washington Post um málið segir að yfirlýsing Trumps undirstriki klofning í Repúblikanaflokknum og dragi enn skýrar fram þær tvær blokkir sem munu berjast um völdin í flokknum á næstunni.
Annars vegar sé þar um að ræða Trump sjálfan og stuðningsmenn hans sem setja engin spurningamerki við hegðun eða gjörðir forsetans fyrrverandi.
Hins vegar séu svo hefðbundnari Repúblikanar sem vilja leggja áherslu á að byggja flokkinn upp að nýju með pólitískri stefnu sem höfði meira til kjósenda.