Fyrir þrjátíu árum lagði Atlantshafsbandalagið ljósleiðarakapal með átta strengjum hringinn í kringum landið vegna öryggis- og varnarhagsmuna Íslands og bandalagsins. NATO nýtir tvo strengi, Míla hefur fimm til umráða og Vodafone hefur leigt einn eftir útboð til tíu ára sem var framlengt um eitt ár og rennur út á þessu ári.

Starfshópur á vegum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra leggur til að samráð verði haft við NATO um útboð á tveimur strengjum kapalsins á þessu ári. Það muni auka samkeppni á grunnnetinu sem sveitabæjir og byggðarlög tengi sig inn á.

„Það þýðir að þá er líklegra að þau svæði sem ekki eru með góðar ljósleiðaratengingar núna fái betri tengingar. Það er svo sannarlega þörf á því á til dæmis ýmsum þéttbýlisstöðum um landið,“ segir Guðlaugur Þór.

Frá því NATO lagði grunnkapalinn hefur mikil þróun átt sér stað og ýmsir aðilar lagt ljósleiðara um landið eins og sést á dökkbláu línunum á meðfylgjandi mynd. Ljósbláu línurnar sýna síðan ljósleiðara sem sveitarfélög eru að leggja og klárast vonandi á þessu ári að sögn Haraldar Benediktssonar formanns starfshóps ráðherra. Rauðu línurnar sýna svo svæði sem starfshópurinn segir nauðsynlegt að brúa ef opna eigin nýjan landshring fjarskipta.

Sveitabæir landsins eru flestir orðnir vel settir eftir átak stjórnvalda undanfarin ár. Um þrettán þúsund heimili í þorpum og bæjum eru þó enn án tenginga.
„Við viljum alla vega gera tilraun til að efla samkeppnina til að menn sæki fram til að tengja þessi heimili. Já, þetta eru um fimmtíu byggðarlög sem hafa litla eða enga uppbyggingu á sviði ljósleiðara. Það er næsta verkefni okkar í fjarskiptamálum,“segir Haraldur Benediktsson.