Skoðun

Rétti tíminn fyrir aukna vel­ferð er núna

Helga Guðrún Jónasdóttir skrifar

Norræna vinnumarkaðslíkanið hefur skilað launafólki á hinum Norðurlöndunum mun hærri launum en almennt eru greidd hér á landi. Munurinn er breytilegur eftir starfsstéttum, en hleypur á bilinu 5-10% og upp í 35-40%. Sá agi sem líkanið byggir samningagerðina á, hefur stuðlað markvisst að aukinni kaupmáttaraukningu hjá launafólki og jöfnuði í tekjuskiptingu í meira hálfa öld.

Vinnumarkaðslíkanið byggir á þeirri sameiginlegu sýn aðila vinnumarkaðarins annars vegar og stjórnmálaflokka hins vegar að ábyrg hagstjórn í almannaþágu, sterkt velferðarkerfi og skilvirkur vinnumarkaður skili launafólki mesta mögulega kaupmætti og velferð hverju sinni.

Skoðum þetta aðeins nánar. Hvað standa þessar þrjár grunnstoðir í raun fyrir?

Ábyrg hagstjórn í almannaþágu

Með ábyrgri hagstjórn er fyrst og fremst verið að krefjast aga; að ríkisstjórn afgreiði fjárlög sem þjóna almennum hagsmunum og halda verðlagi stöðugu. Eða eins og einhver sagði eitt sinn - að koma í veg fyrir að sérhagsmunaöfl raði sér við kjötkatlana og stuðla að ríkisrekstri á heilbrigðum grunni.

Sterkt velferðarkerfi

Krafan um sterkt velferðarkerfi er önnur grunnstoð norræna vinnumarkaðslíkansins. Með nokkurri einföldum má segja að hún standi fyrir sátt um tiltekna verkaskiptingu á milli aðila vinnumarkaðarins annars vegar og stjórnvalda hins vegar. Með áherslunni á öflugt heilbrigðiskerfi, menntakerfi og nærsamfélagsþjónustu fyrir alla, svo að dæmi séu tekin, er markvisst verið að stuðla að afar mikilvægum samfélagslegum jöfnuði. Norræna velferðarkerfið er þannig óaðskiljanlegur hluti norræna vinnumarkaðslíkansins.

Skilvirkur vinnumarkaður

Með kröfunni um skilvirkan vinnumarkað lýsa aðilar vinnumarkaðarins sameiginlegum skilningi á því að forsenda aukins kaupmáttar, stöðugs verðlags og öflugs velferðarkerfis er verðmætasköpun. Við þurfum að búa til þá peninga sem standa straum af kaupmætti og samfélagslegri velferð.

Klárum málið

Eins og sjá má, gengur norræna vinnumarkaðslíkanið út á uppbyggingu og þróun þess velferðarsamfélags sem sátt ríkir nú þegar um hér á landi í öllum meginatriðum. Því er hins vegar ekki að leyna, að hér á landi hefur þróun ekki gengið jafn vel eftir og á hinum Norðurlöndunum. Í stað þess að vera með norræna vinnumarkaðslíkanið hér í hálfgerðu skötulíki, er því tímabært að við stígum skrefið til fulls og tökum þetta þrautreynda líkan endanlega í gagnið, eins og stefnt hefur verið að um árabil.

Skerðum völd sem heimila lélega hagstjórn og verðbólgu

Með hliðsjón af ofansögðu hlýtur andstaða núverandi formanns VR við norræna vinnumarkaðslíkanið að vera á meiriháttar misskilningi byggð. Þau rök að líkanið eigi ekki rétt á sér vegna þess að það skerði völd verkalýðshreyfingarinnar, eins og hann hefur haldið fram, eru bull. Þau völd sem norræna vinnumarkaðslíkanið skerðir eru eingöngu völdin til að gera lélega kjarasamninga, stuðla að hefðbundnu höfrungahlaupi og verðbólgu. Og satt best að segja þá eru það völd sem við hefðum betur skert fyrir löngu síðan í þágu aukins kaupmáttar og aukinnar velferðar hér á landi.

Höfundur er stjórnmála- og fjölmiðlafræðingur og býður sig fram til formanns VR.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×