Nánar tiltekið á kaffihúsinu Prikinu þar sem því hefur verið komið fyrir í porti staðarins sem snýr út að Ingólfsstræti. Á skýlið er málað listaverk eftir Margeir Dire Sigurðsson sem féll frá tæplega 34 ára árið 2019.
Akureyri.net greinir í dag frá því að ákveðin umræða sé komin upp fyrir norðan að varðveita listaverk eftir Margeir á austurgafli Kaupvangsstrætis 6, þar sem veitingastaðurinn Rub 23 er nú til húsa; í portinu við gömlu höfuðstöðvar Kaupfélags Eyfirðinga.
Margeir var þekktur fyrir myndsköpun í mismunandi miðla svo sem vegglistaverk, strigamálverk, teikningar, video, tónlist, hönnun og listræna stjórnun. Margeir hélt fjölda einkasýninga og tók þátt í allskyns samsýningum og samstarfsverkefnum.
Í samtali við Akureyri.net segir Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, það mjög góða hugmynd að varðveita verkið sem er einstaklega fallegt.
Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hvatti einnig til þess að varðveita verkið eftir að í ljós kom að strætóskýlið með verki eftir Margeir væri komið í portið á Prikinu.
„Margeir var mjög skapandi og skemmtilegur nemandi. Hann var heilmikið í götulist en líka mjög flinkur málari,“ segir Hlynur í samtali við Akureyri.net en hann var einn kennara Margeirs í Myndlistaskólanum á Akureyri.
„En maður tók snemma eftir að því veggir voru í raun það sem freistaði hans lang mest.“
Umrætt verk er mynd af fíl og barnavagni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.