Þetta kom fram í yfirlýsingu frá Kim sem birt var af ríkisdagblaði Norður-Kóru en hún stýrir samskiptum einræðisríkisins við nágranna sína í suðri.
Samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunnar eru ummæli Kim rakin til þess að að Antony Blinken og Lloud Austin, utanríkis- og varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna eru nú staddir í Asíu. Í ferð þeirra um heimsálfuna munu þeir meðal annars heimsækja bandamenn Bandaríkjanna í Japan og Suður-Kóreu auk annarra ríkja á svæðinu.
Hún gagnrýndi Bandaríkin og Suður-Kóreu einnig fyrir sameiginlegar heræfingar sem hófust í síðustu viku og hótaði því að draga Norður-Kóreu úr samkomulagi frá 2018 um að draga úr spennu á svæðinu og leggja niður sérstaka deild sem haldið hefur utan um samskipti við Suður-Kóreu.
Hún sagði heræfingar vera ógn gegn Norður-Kóreu og jafnvel þó þær væru smáar.
Þar að auki sagði Kim að mögulega yrði lögð niður sérstök skrifstofa sem hefði séð um skipulagðar ferðir frá Suður-Kóreu til Demantsfjalls en þeim ferðum var hætt árið 2008, þegar hermaður skaut ferðamann frá Suður-Kóreu til bana.
Kim hefur á undanförnum mánuðum verið tiltölulega stóryrt í garð Suður-Kóreu og Bandaríkjanna.
Sjá einnig: Kim, systir Kim, segir herforingja Suður-Kóreu heimska
Ríkisstjórn Bidens hefur sagt að tilraunir hafi verið gerðar til að ná samskiptum við ríkisstjórn Kim Jong Un. Þar á bæ hafi menn þó hingað til neitað að taka upp símann. Samkvæmt heimildum AP fréttaveitunnar hafa þessar tilraunir staðið yfir frá því í síðasta mánuði.
Kim Jong Un hefur heitið því að bæta kjarnorkuvopnum í vopnabúr sitt en ljóst er að Norður-Kórea gengur nú í gegnum mikla efnahagsörðugleika. Þá hafa samskipti Norður- og Suður-Kóreu versnað töluvert á undanförnum mánuðum.