Þótt samdrátturinn í þjóðarframleiðslunni hafi verið mun minni en áætlað var á síðasta ári er Bjarni ekki sáttur við hvernig spilast hefur úr þeim fjármunum sem settir hafa verið til fjárfestinga á vegum ríkisins. Ef til vill þurfi ríkið að vera sveigjanlegra við útdeilingu fjármagns eftir því hvar og hvenær verkefni koma upp.

Þá verður rætt við Bjarna um komandi kosningar í haust og mögulegt áframhald á stjórnarsamstarfi núverandi stjórnarflokka sem hann segir hafa gengið vel. Fái flokkarnir til þess góðan meirihluta beri þeim að ræða saman um mögulegt samstaf áfram.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur er einn sá virtasti á sínu sviði í heiminum og verður í seinni hluta Víglínunnar í dag. Hann segir eldgosið í Geldingadölum marka mikil tímamót í jarðsögunni. Nú hafi vísindamenn í fyrsta skipti fengið innsýn í möttulinn undir Íslandi. Þá hafi verið mikið landrek á svæðinu þannig að Krýsuvík hafi færst til um sextán sentimetra.

Aftur á móti telur Haraldur að eldgosið á Reykjanesi muni ekki standa lengi. Það muni þó verða mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Hann stefni því á að færa eldfjallasafn sitt frá Stykkishólmi á Reykjanes.
Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:40.