Móttökurnar eru hlýlegar hjá hjónunum Jóhanni Issa Hallgrímssyni og Hjördísi Guðmundsdóttur, sem komu veitingavagni fyrir á svæðinu í lok síðasta mánuðar, þar sem boðið er upp á fisk og franskar.
Eins og Jóhann lýsir í samtali við Vísi, komust þau þó fljótt að því að eftirspurn var einnig eftir kaffi og kleinum í aðstæðum sem þessum, þannig að þau brugðust við því.
Það er nóg að gera. „Hálfur skammtur af fiski og frönskum er mikið tekinn en síðan er einkar mikil sala í frönskunum. Svo vill fólk fá sér kók með sykri að drekka eftir gönguna,“ segir Jóhann, sem rekur þegar Fish and Chips-staðinn Issa á Fitjum í Reykjanesbæ.
Nokkrir matarvagnar komu sér fyrir við Suðurstrandarveg þegar umferðin var mest í lok mars og var Issi einn þeirra. Þeir hafa þó allir nema Issi horfið á brott síðan þá, enda er ekki sjálfsagt að halda úti þjónustu án almennilegs rafmagns.
Jóhann bjó svo vel að hafa fullbúinn farandvagn til reiðu áður en gosið hófst en hann gengur fyrir rafmagni úr jeppa hans. Fish and Chips óháð aðstæðum, eins og hann segir. „Ég beið og beið eftir þar til þetta byrjaði og þá sá ég tækifærið um leið. Það er lítið að gera útaf Covid-19 á Fitjum þannig að ég hef ekkert betra að gera en að hanga þarna. Það er bara gaman að því.“
Hann kvartar ekki undan einokunarstöðunni sem hann nýtur þessa stundina, en hann hefur samið við landeigendur um að vera með fasta stöð á bílastæðinu við veginn: „Þegar fólk kemur hingað á bakaleiðinni í myrkri sjá þau vagninn hvort sem þau eru að koma til mín eða ekki.“

Beið og beið eftir gosi
Viðskiptamódelið tekur mið af þörfum fólks, sem flest mætir með nesti. Það er því lítið um veitingasölu áður en haldið er upp að eldgosi, nema ef vera skyldi einn og einn kaffibolli á stangli. Þegar fólk kemur niður freistast það margt til að grípa sér munnbita hjá Issa.
„Það er virkilega gaman að vera hérna. Við höfum líka verið að leiðbeina fólki sem veit minna hvað það er að fara út í, þannig að maður hagar sér eins og trúður hérna yfir daginn og býður fólk velkomið.“
Jóhann selur fisk beint frá bæjarútgerðinni Þorbirni hf. í Grindavík og gerir fastlega ráð fyrir að eldgosið verði lyftistöng fyrir efnahag svæðisins, sama hvort það standi lengi eða hvort það verði bara nýtt hraun sem muni laða fólk að. Í næsta nágrenni við Bláa lónið; geri aðrir betur.
