Una er uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur og er búsett í Kópavogi en er uppalin á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu. Una hefur meðal annars starfað sem forseti Kvenfélagasambands Íslands, ritstjóri Skinfaxa, varaþingmaður, varabæjarfulltrúi, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs og svo framvegis.
Hún hefur starfað í fjórum ráðuneytum, sem aðstoðarmaður umhverfisráðherra, sérfræðingur í forvörnum hjá heilbrigðisráðuneytinu, verkefnisstjóri nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum í félagsmálaráðuneytinu og verkefnisstjóri ráðherranefndar um lýðheilsu hjá Embætti landlæknis í forsætisráðuneytinu.
„Það á enginn neitt í pólitík og þar sem ég hef fengið hvatningu úr öllum kjördæmum hef ég ákveðið að láta slag standa og bjóða áfram fram krafta mína í þágu Miðflokksins,“ skrifar Una í tilkynningu.