Keflavík hefur sópað bæði Tindastól og KR í sumarfrí í fyrstu tveimur umferðum úrslitakeppninnar en Keflavíkurliðið hefur ekki tapað leik síðan 12. febrúar eða í 124 daga.
Alls er Keflavíkurliðið búið að spila átján leiki í röð í Domino´s deildinni án þess að tapa því liðið vann tólf síðustu leiki sína í deildarkeppninni.
Tvö önnur lið hafa byrjað úrslitakeppni á sex sigurleikjum. Snæfellingar náðu því fyrst vorið 2004 og KR-ingar léku það síðan eftir fimm árum síðar eða í úrslitakeppninni 2009. KR-liðið fór alla leið og varð Íslandsmeistari en Snæfell tapaði þremur síðustu leikjum úrslitakeppninnar á móti Keflavík.
Hér áður fyrr þurfti að vinna færri leiki í úrslitakeppninni til að verða Íslandsmeistari. KR varð þannig fyrsta liðið til að vinna fimm fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni 1990 en þá voru ekki fleiri leikir í boði.
Njarðvíkingar hafa einnig unnið þrjá Íslandsmeistaratitla án þess að tapa leik en þeir unnu alla fjóra leiki sína í úrslitakeppnunum 1984, 1986 og 1987.
Fyrsti leikur Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn hefst klukkan 20.15 í kvöld og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.30 og eftir leikinn verður síðan hann gerður ítarlega upp á sömu stöð.
- Flestir sigurleikir í röð í upphafi úrslitakeppninnar:
- 6 - Snæfell 2004 (tapaði leik 7 í lokaúrslitum á móti Keflavík)
- 6 - Keflavík 2021
- 6 - KR 2009 (tapaði leik 7 í lokaúrslitum á móti Grindavík)
- 5 - Tindastóll 2015 (tapaði leik 6 í undanúrslitum á móti Haukum)
- 5 - KR 2014 (tapaði leik 6 í undanúrslitum á móti Stjörnunni)
- 5 - Grindavík 1997 (tapaði leik 6 í lokaúrslitum á móti Keflavík)
- 5 - KR 1990 (Vann alla leikina sína í úrslitakeppninni)