Dalverpið Nátthagi er fjölsóttasti staðurinn við gosstöðvarnar þessa dagana en þar komast ferðamenn í návígi við nýrunnið hraunið. Í dag virtist okkur sem útlendingar væru þar í talsverðum meirihluta en í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá að sumir hikuðu ekkert við að ganga út á hraunið.
Á jörðinni Ísólfsskála voru þau Halldór Ármannsson og Stefanía Haraldsdóttir á sama tíma að bera lausamuni úr bústaðnum sínum út í sendiferðabíl. Þau voru að pakka saman.

„Já, það virðist allt stefna í að þetta komi hérna niður, bara á næstu einni eða tveimur vikum, segja þeir,“ segir Halldór, sem er í eigendahópi Ísólfsskála.
-Þannig að þið eruð bara í verðmætabjörgun?
„Já, við erum bara að reyna að bjarga öllu, - það sem maður getur farið með.“
Þau fóru einnig inn í Nátthaga í dag til að kanna aðstæður. Þar skreið hrauntungan hratt fram um síðustu helgi en hefur síðan lítið hreyfst. Nýtt hraunflæðilíkan Veðurstofunnar gerir þó ráð fyrir að hraunið muni ná Suðurstrandarvegi og Ísólfsskála um síðir, haldi gosið áfram.

„Þetta er bara grátlegt, bara í einu orði sagt,“ svarar Stefanía, spurð um tilfinningarnar sem bærast með þeim, núna þegar þessi ógn og örlög vofa yfir jörðinni.
„Ég er búinn að vera hérna frá því ég var fimm ára. En maður spyr ekkert almættið. Maður ræður ekkert við það,“ segir Halldór.
Niðurstaða yfirvalda var að ekki væri raunhæft að verja Ísólfsskála með varnargörðum.
„Í fyrsta lagi er þetta mjög dýrt, hleypur á mörghundruð milljónum. Í öðru lagi þá er ekki víst að þetta myndi duga, allavega ekki til langframa. Þannig að það var ekki talið verjandi að reyna þetta vegna þess að árangurinn gæti verið lítill sem enginn,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur.

Í dag var hins vegar unnið að því að verja ljósleiðara við Suðurstrandarveg með því að leggja þykkari jarðveg ofan á hann.
„Í þeirri von að hann verði ekki fyrir neinum skemmdum þegar og ef hraun fer að renna þarna yfir,“ segir Fannar.
Um leið er þess freistað að greiða leið ferðamanna að sjónarspilinu. Eftir að hraunrennsli lokaði gömlu aðalleiðinni, gönguleið A, virðast ferðamenn núna hafa fundið nýja aðalgönguleið til að geta séð eldgíginn; upp á Langahrygg austan Nátthaga.
Þar er núna verið að stika leiðir en einnig áformað að opna nýtt bílastæði á túni í svokölluðum Stóra-Leirdal, en þaðan er styttra upp á Langahrygg.
„Þaðan er mjög víðsýnt og sést til gígsins. Og það sést yfir hraunið í Nátthaganum. Þannig að það er eiginlega sá staður sem er langákjósanlegastur núna,“ segir bæjarstjóri Grindavíkur.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: