Erfitt hefur reynst fyrir bílaleigur, sem minnkuðu flota sinn verulega í faraldrinum, að fá bíla þar sem bílaframleiðsla hefur ekki enn náð fullum afköstum.
Forsvarsmaður bílaleiguþjónustunnar CarRenters hefur ekki farið varhluta af stöðunni en ólíkt samkeppnisaðilunum eru engir bílar í eigu fyrirtækisins. Í stað þess hefur CarRenters milligöngu um leigu bifreiða í einkaeigu og er eftirspurnin nú margfalt meiri en árið 2019.

Þrefalt meiri velta en árið 2019
„Það er allt að fullbókast hjá okkur,“ segir Viktor Þórisson, eigandi CarRenters og einkabílaleigunnar Caritas sem er rekin með sama fyrirkomulagi. Greinilegt sé að erlendir ferðamenn leiti nú lengra þegar ekki er hægt að treysta á hefðbundnar bílaleigur.
Hann segir að velta CarRenters fyrstu ellefu daga júlímánaðar sé strax orðin meiri en allan júlí 2019. Veltan hafi því í raun þrefaldast en fyrirtækið tekur allt að 22% þóknun af leigutekjum bifreiðaeigenda. Veltuaukningin litast einnig af hærra leiguverði en hærri tekjur fást nú af útleigu bifreiða eftir að bílaleigur hækkuðu verðskrár sínar.
Airbnb fyrir bíla
„Það er mikil umframeftirspurn og það er alveg augljóst það væri hægt að leigja miklu fleiri bíla. Heimsóknir á heimasíðuna eru margfaldar miðað við það sem hefur verið,“ segir Viktor.
Hann hefur starfrækt CarRenters frá árinu 2003 og tók síðar yfir rekstur Caritas. Hann líkir leigufyrirkomulaginu við Airbnb fyrir bíla. Eigendur bifreiðanna stýri verðlagningu, hvenær þeir eru lausir til útleigu og sjái um afhendingu og móttöku.
Á meðan hafi CarRenters milligöngu um viðskiptin, setji skilmála og sjái til að mynda um samskipti við tryggingafélög sem rukka gjarnan aukagjald þegar bílar eru settir í útleigu.
Viktor er eini starfsmaður CarRenters og Caritas í dag en þeir voru tveir á tímabili. Hafa fyrirtækin legið í nokkurs konar dvala í faraldrinum líkt og mörg önnur ferðaþjónustufyrirtæki en nú er aldeilis farið að sjást til sólar.
Ferðamálastofa spáir því nú að 890 þúsund erlendir ferðamenn komi til landsins á þessu ári og að fjöldinn verði svipaður á næsta ári og árið 2019, eða tæpar tvær milljónir. Er það heldur bjartsýnni spá en áður hefur sést hjá Ferðamálastofu og öðrum greiningaraðilum.
Vill ekki sjá óáreiðanlega bíla
Fjöldi bíla á skrá hjá CarRenters fækkaði töluvert í faraldrinum og eru nú rúmlega fimmtíu talsins. Til samanburðar voru þeir rúmir hundrað nokkuð áður en faraldurinn skall á, að sögn Viktors.
Hefur hann því gripið til þess ráðs að auglýsa hátt og lágt eftir nýjum bílum á skrá og lagt áherslu á að bifreiðaeigendur geti sótt sér góðar aukatekjur í núverandi ástandi. Þá sé ekki síður gott að geta lagt efnahagslegri endurreisn landsins lið og bætt upplifun þeirra sem sækja landið heim.

„Verðin eru það há að bílar eru kannski að leigjast á tvöfalt hærra verði hjá okkur núna en í fyrra,“ bætir Viktor við.
Dæmi séu um að fólk fái virði bíla sinna í leigutekjur yfir sumarið og sumir sjái því slíka leigu sem nokkuð vænlegan fjárfestingakost.
„Þú ert kannski með bíl upp á milljón og fólk er að fá milljón í leigu fyrir jeppling núna í sumar, það er bara eðlilegt.“
Viktor leggur þó áherslu á að bíllinn þurfi að vera áreiðanlegur, veðbandalaus og ekki eldri en fimmtán ára. Leiðinlegt sé að lenda í því að bíllinn manns bili hinum megin á landinu.
„Það er ekkert vit í því að leigja út bíla sem er vesen á.“