Hinn fjörutíu ára gamli Matthew Taylor Coleman myrti tveggja ára son sinn og tíu mánaða dóttur sína um síðustu helgi. Hann tók börnin af heimili þeirra og fór með þau til Mexíkó þar sem hann skaut þau með spjótbyssu. Hann var svo handtekinn við að reyna að komast einn aftur inn í Bandaríkin.
Farið er yfir málið í frétt Washington Post.
Þar segir að Coleman hafi ætlað að fara í útilegu með börnum sínum og eiginkonu sinni. Þess í stað laumaðist hann á brott með börnunum áður en sólin reis á síðasta laugardag. Frá heimili þeirra í Santa Barbara í Kaliforníu keyrði hann til Mexíkó, þar sem hann myrti þau.
Taldi börnin ekki í hættu
Eiginkona Coleman hringdi á lögregluna eftir að hún uppgötvaði að hann hefði farið með börn þeirra. Hún sagðist þó ekki telja þau í hættu.
Hún hringdi aftur í lögregluna á sunnudaginn og tilkynnti börnin formlega týnd. Þá sagði hún þau hjón ekki eiga í neinum vandræðum og þau hefðu ekki staðið í rifrildi eða öðru sem útskýrði af hverju Coleman hafði tekið börnin.
Það var ekki fyrr en á mánudaginn sem Coleman sneri aftur til Bandaríkjanna, án barnanna. Hann var handtekinn og þá fannst blóð á skráningarskírteini bíls hans.
Taldi börnin eðlufólk
Við yfirheyrslu játaði Coleman að hafa myrt börn sín. Hann sagðist hafa fengið uppljómun í tengslum við samsæriskenningar sem tengjast QAnon og Illuminati. Samsæriskenningar þessar fjalla meðal annars um það að leynilegur hópur stjórni heiminum úr skuggunum og eðlufólk, svo eitthvað sé nefnt.
Coleman sagðist í þeirri trú að eiginkona hans bæri eðluerfðaefni og börnin þar af leiðandi líka.
Hann sagðist hafa myrt börn sín til að bjarga heiminum frá skrímslum.
Í eðsvarinni yfirlýsingu sem útsendari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) sem ræddi við Coleman skrifaði sagði hún hann hafa vitað að það sem hann gerði væri rangt. Hann hafi þó talið það að myrða börnin sína það eina sem hann gæti gert.
Hér má sjá sjónvarpsfrétt ABC7 í Kaliforníu um morðin.
Í frétt ABC7 segir að lík barnanna hafi fundist á búgarði nærri Rosarito í Mexíkó. Þar hafði Coleman tékkað sig inn á hótel á laugardaginn. CBS hefur eftir embættismönnum í Mexíkó að upptökur úr öryggismyndavélum sýni Coleman fara af hótelinu með börnin fyrir dagsupprás á mánudaginn.
Hann kom svo aftur á hótelið einn og tékkaði sig út.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem samsæriskenningar sem tengjast QAnon eru sagðar leiða til ofbeldis. Þær snúast um margskonar fjarstæðukennda hluti en á grunni þess að valdamiklir djöfladýrkendi barnaníðingar stjórni heiminum á bakvið tjöldin.