Akureyri.net greindi frá þessu í dag, en Sofie er örvhent skytta sem lék síðast með H71 í Færeyjum. Hún kom til landsins með unnusta sínum, Pætur Mikkjálsson, færeyska línumanninum sem kom til KA í sumar.
Hún lék ekkert á síðasta keppnistímabili og hafði hugsað sér að einbeita sér að námi og styðja við bakið á unnusta sínum í vetur frekar en að spila handbolta.
Sofie fékk að mæta á æfingar með Íslandsmeisturunum og í kjölfarið var ákveðið að semja við hana. Hún er nú þegar komin með leikheimild og gæti því spilað gegn Fjölni Coca Cola bikarnum næstkomandi laugardag.