Valskonan Elín Metta Jensen varð að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla, samkvæmt tilkynningu frá KSÍ í dag. Svava, sem leikur með Bordeaux í Frakklandi, var því kölluð inn í hennar stað.
Svava, sem er 25 ára gömul, á að baki 25 A-landsleiki og var meðal annars með í síðasta landsliðsverkefni þegar Ísland mætti Írlandi í júní.
Ein breyting hefur verið gerð á hóp A kvenna fyrir leikinn gegn Hollandi.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 13, 2021
Elín Metta Jensen getur ekki verið með vegna meiðsla. Í hennar stað kemur Svava Rós Guðmundsdóttir inn í hópinn.#dottir pic.twitter.com/F8dCMu1FkS
Elín Metta var markahæst í íslenska landsliðinu í síðustu undankeppni, þegar Ísland vann sig inn á EM, með sex mörk í átta leikjum.
Ísland og Holland mætast á Laugardalsvelli á þriðjudaginn í næstu viku í fyrsta leik í undankeppni HM.