Skoðun

Svan­dís fílar sjúkra­liða

Sandra B. Franks skrifar

Á mínum fyrsta starfsdegi, þann 16. maí 2018, sem formaður Sjúkraliðafélags Íslands átti ég fund með Svandísi Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Umræðuefnið var mönnun í heilbrigðiskerfinu og áherslur stéttarinnar um að fjölga sjúkraliðum. Ég sá það strax að Svandís fílar sjúkraliða. Með athygli hlustaði hún á áherslur forystu félagsins þegar bent var um mögulegar leiðir til að fjölga sjúkraliðum.

Mönnunavandinn hefur lengi verið eitt af vandamálum heilbrigðiskerfisins. Í dag skortir sjúkraliða, og sá skortur mun verða enn átakanlegri á næstu árum, þegar verkefni stéttarinnar við hjúkrun og umönnun aldraðra munu halda áfram að vaxa. Þjóðin er að eldast, og allir gera sér ljóst, að það verður sjúkraliðastéttin sem fyrst og fremst mun sjá um hjúkrun aldraðra í framtíðinni. Við erum hin vaxandi hjúkrunarstétt, sem munum bera uppi heimahjúkrun, hjúkrunarheimili og sjá um nærhjúkrun á sjúkrahúsum landsins.

Sjúkraliðar í fagráðin

Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að sjúkraliðar eigi að fá tækifæri til jafns við aðrar hjúkrunarstéttir til að móta hjúkrunarstefnu á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Forysta félagsins ræddi við heilbrigðisráðherra og beitti sér fyrir því að tekin yrði upp fagráð heilbrigðisstofnana með aðild allra fagstétta. Það var því mikið fagnaðarefni fyrir sjúkraliða þegar Alþingi samþykkti að ný fagráð yrðu tekin upp. Með þessu breytta skipulagi geta sjúkraliðar loksins átt aðkomu að samtali og samráði við stjórnendur stofnana, og þar með haft áhrif á stefnumótandi ákvarðanir um heilbrigðisþjónustuna.

Tilfærsla starfa

Eitt af mínum fyrstu verkum sem formaður var að leggja til við heilbrigðisráðherra að stofnaður yrðir samráðsvettvangur hjúkrunarstétta til að ræða sérstaklega mönnun í heilbrigðiskerfinu. Á heilbrigðisþingi 2020 var ákveðið að stofna sérstakt landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Það var sjúkraliðum mikið fagnaðarefni þegar landsráð var svo skipað, og falið það hlutverk að fjalla um verkaskiptingu heilbrigðisstétta, með áherslu á fela sjúkraliðum aukin verkefni og nýta þannig betur færni þeirra í verkefnum heilbrigðisþjónustunnar. Með þessum áherslum ráðherra leikur engin vafi á að með tilfærslu starfa munu sjúkraliðar finna betur til sín, og sömuleiðis mun um leið losna um verkefni annarra heilbrigðisstarfsmanna sem geta tekið að sér enn sérhæfðari störf sem líka þarf að manna.

Fagnám til diplómaprófs

Sjúkraliðar nutu jafnframt mikils skilnings og stuðnings heilbrigðisráðherra sem og menntamálaráðherra þegar forysta félagsins beitti sér fyrir nýrri námsleið á fagháskólastigi fyrir sjúkraliða. Á endanum samþykkti ríkisstjórnin að fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða yrði við Háskólann á Akureyri haustið 2021.

Sjúkraliðar glöddust því þegar ný námsleið, fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða, fór af stað núna á þessu haustmisseri. Mikil ásókn var í námið en 86 umsóknir bárust um 20 námspláss. Næsta haust, og svo á ári hverju, munu fleiri nemendur bætast í hópinn. Með þessari nýju námsleið mun færni sjúkraliða styrkjast enn frekar til að takast á við viðameiri viðfangsefni og ábyrgð í störfum sínum.

Alvöru verkefni í höfn

Forysta Sjúkraliðafélagsins hefur átt einstaklega gott og farsælt samstarf við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, sem sömuleiðis hefur verið árangursríkt. Samvinnan hefur skilað alvöru verkefnum í höfn og fyrir það á heilbrigðisráðherra á þakkir skildar.

Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×