Góður fyrri hálfleikur dugði ekki til fyrir Martin og félaga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. september 2021 12:35 Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia unnu góðan sigur í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Mike Kireev/NurPhoto via Getty Images Martin Hermansson og félagar hans í Valencia tóku á móti Murcia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Valencia tók forystuna snemma leiks en þurfti að sætta sig við fimm stiga tap, 91-86.
Murcia skoraði fyrstu tvö stig leiksins, en Valencia kom sér yfir strax í næstu sókn. Martin og félagar náðu mest átta stiga forskoti í fyrsta leikhluta og var staðan 20-15 að honum loknum. Valencia átti frábæran annan leikhluta og skoruðu 16 stig gegn aðeins fjórum stigum gestanna í upphafi leikhlutans. Þegar að flautað var til hálfleiks var staðan 42-31 og Martin og félagar í góðum málum. Gestirnir náðu að saxa vel á forskotið í þriðja leikhluta og þegar stutt var eftir af honum var munurinn kominn niður í aðeins tvö stig. Þegar komið var að lokaleikhlutanum var staðan 65-60, Valencia í vil. Gestirnir í Murcia mættu ákveðnir til leiks í lokleikhlutann og náðu fljótlega forystunni. Þeir náðu mest níu stiga forskoti um miðjan leikhlutann, en Martin og félagar unnu sig aftur inn í leikinn og minnkuðu muninn aftur í tvö stig. Murcia reyndist þó sterkari aðilinn á lokakaflanum og vann að lokum fimm stiga sigur, 91-86. Martin og félagar hans í Valencia hafa nú tapað tveim af fyrstu þrem leikjum tímabilsins, en Murcia er með tvo sigra í sínum þrem leikjum.
Körfubolti Spænski körfuboltinn Mest lesið Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Fleiri fréttir „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Sjá meira