Birgir Örn Guðjónsson, best þekktur sem Biggi lögga, flutti í íbúð á Völlunum í Hafnarfirði fyrir tveimur árum síðan.
„Ég skildi þá og keypti mér eign og ég vildi ekki taka neitt með úr hinni eigninni af því að ég vildi bara að krakkarnir væru þar með mömmu sinni og allt væri bara eins og það væri.“
Hann fyllti því nýju íbúðina sína af hinum og þessum húsgögnum til bráðabirgða og sagði börnunum að þau myndu byggja þetta heimili þeirra upp hægt og rólega. Þessi bráðabirgðalausn hans var nefnilega eiginlega að verða að endanlegri lausn svo hann fékk Soffíu til að taka allt í gegn og breyta íbúðinni í draumaheimilið.
Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og við mælum með því að þú horfir á þáttinn áður en þú lest áfram, þar sem lokaútkomuna má finna neðar í greininni. Nýr þáttur af Skreytum hús birtist svo hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni alla miðvikudaga næstu vikur.
Rýmið kuldalegt
„Ég hef ekki sterkar skoðanir á þessu,“ sagði Biggi hreinskilin við Soffíu áður en hún byrjaði á breytingunum. „Hann var tilbúinn til að leyfa mér að hlaupa svolítið með þetta, það er svolítið mín draumastaða, ég fæ að ráða.“

„Þetta er svolítið kuldalegt,“ segir Byggi um rýmið fyrir breytingar. „Mig langar að þetta verði svolítið hlýlegt, heimilislegt.“

Biggi tók niður eldhússkáp og losaði sig við flest húsgögnin úr eldhúsinu og stofunni. Flísar á eldhúsveggjum voru málaðar og hillum bætt við. Ný húsgögn, kósý sófi og mottur gjörbreyttu íbúðinni. Viðarveggþiljur, gardínur og fallegt skraut Soffíu setti svo punktinn yfir i-ið.
Úr íbúð í heimili
„Er þetta örugglega rétt íbúð?“ spurði Biggi þegar hann fékk að koma heim aftur eftir breytingarnar. „Þetta er eins og allt önnur íbúð, ertu ekki að grínast?“

Biggi segir að það hafi komið á óvart hversu hratt þetta gekk fyrir sig.
„Þetta var íbúð, en nú er þetta heimili.“
Hann var alveg í skýjunum með allt saman og er spenntur að bjóða fólki í mat og halda spilakvöld.
„Ég er ennþá að átta mig á því að þetta sé heimilið mitt,“ sagði hann um lokaútkomuna, brosandi eyrna á milli. „Ég er agndofa.“

Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús er hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Soffía Dögg gerði tvö „moodboard“ fyrir breytingarnar til þess að sjá betur fyrir sér lokaútkomuna.


Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+.